þriðjudagur, 26. júní 2007

"Hi there, how are you" !

Síðan í lok maí höfum við:

- Yfirgefið R.vík og flogið með ógurlegt magn af farangri dágóða leið yfir hnöttinn.
- Ferðast með syngjandi leigubílstjóra frá Punjabi með allt okkar hafurtask í nýja íbúð.
- Útvegað okkur kennitölur, símanúmer og aðrar nauðsynjar eins og Kitcen Aid, 24" I-Mac, Benz B class, hjól, heimskort á veggin í stofuna, bókina "Best hikes & walkes of southwestern British Columbia, klósettpappír og tannkrem.
- Borðað "Copper river" lax í boði Gary Clark og July og komumst að því að "lax er ekki bara lax".
- Þvælst um Whistler þar sem næstu vetrarólimpíleikar verða haldnir og ætlum að gerast fastagestir.
- "Rölt" upp á nokkra fjallstoppa í nágrenningu með tilheyrandi strengjum og klassa útsýni.
- Hjólað "ótrúlega" marga kílómetra og vegið upp allt kaloríutap með eðal mat.
- Fengið góða gesti frá Íslandi sem komu hingað á ráðstefnu, Magnús Tumi, Dísa og Kate :-)
- Fundið dótabúðir í næsta nágrenni þar sem finna má kayaka og tilbehör og önnur góð leikföng.
- Dr. Alex er byrjaður að mæta samviskusamlega í vinnuna á UBC campus og líkar vel.
- Dr. Alex er búin að messa yfir allraþjóða kvikindum á ráðstefnu hérna með góðum árangri.
- Lína hefur gert tilraun til að sækja um starf sem aðstoðarbruggari í Molson brugghúsinu. Hinum týpiska
starfsmanni þar má lýsa sem "miðaldra karlmanni með einhverja gráðu í örveru og humlafræðum með góða ístru og gleraugu". Skil ekki að þeir hafi ekki ráðið mig á staðnum !!!
- Lína hefur líka sótt um sem handverksmaður í sjókayak smiðju á Granville island.
- Hún hefur einnig sótt um ýmislegt annað tengt og ekki tengt lyfjafræði.
- Lína fær að lokum hugsanlega vinnu á sjúkrahúsaptóteki St.Pauls sjúkrahússins í miðbæ Vancouver.

Sumsé, við höfum það gott og erum ánægð með "pleisið". Liebe Gruesse/LoA.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ,hæ...

Gott að fá loksins fréttir af ykkur :) Við verðum nú að fara að tengja skype-ið svo við getum tekið almennilegt tjatt!
Annars allt fínt að frétta af Fróni. Það er búin að vera bongo blíða hér á Fróni undanfarið og svei mér þá...held að stelpan sé farin að sýna örlítin lit þ.e. komin úr spítalahvítu í beinhvítt ;)
Fimmvörðuháls- og Þórsmerkurferð á dagsrá í næstu viku...ekkert smá ljúft. Á nú samt eftir að sakna þín, Lexa og koníaksins ;)
Verðum í bandi,
GAP

Nafnlaus sagði...

Ég myndi vilja fá að vita hvort koparárlaxinn var verri eða betri en laxinn sem þið hafið borðað hingað til. Mjög mikilvægt ... :)

Lína og Alex: sagði...

He he, ástæðan fyrir góðu bragði þessa ágæta slors er víst sú að koparárlaxinn þarf að synda eina mestu vegalegd sem um getur upp koparánna i maí mánuði til að svala greddunni og fjölga sér. Greddan ein og sér rekur hann sumsé áfram og fyrir alla þessa vegalend þarf hann víst að hafa óhemju miklar byrgðir af spekki og olíum til að komast á leiðarenda til "rekkjunautarins". Bestur er hann víst veiddur áður en hann nær takmarkinu ! Niðurstaða...soldið betri!