föstudagur, 29. júní 2007

"SICKO"

He he, Þvílíkt eðal framtak hjá Michael Moore! Við fórum á frumsýningu á þessari hrollvekju sem tekur fyrir heilbrygðis- & tryggingakerfi Bandaríkjanna, hérna rétt handan landamæranna. Á sinn einstæða hátt dregur hann fram í dagsljósið hversu dapurt það er að hafa ekki efni á dýrustu sjúkratryggingum og lenda í því að verða veikur í Bandaríkjunum! Án þess að ég ætli að gafa of mikið upp um myndina þá verða ég að minnast á óborganlegt innskot í þessari mynd. Af öllum stöðum má áætla, að Guantanamo Bay við Kúbustrendur sem hýsir herfangelsi stýrðu af Bandaríska hernum, megi finna eina sanngjörnustu heilbrigðisþjónustu sem Bandaríkin bjóða uppá...reyndar ekki í boði fyrir hinn almenna borgara, heldur fangana í þartilgerðu sjúkrahúsi í þessu annars umdeilda herfangelsi. Segi ekki meira en þetta atriði er vert að sjá þó ekki væri nema fyrir tilstylli kaldhæðins húmors!

Moore fer einnig á stúfana og stúderar hverning í ósköpunum heilbrygðiskerfi í geta "fúnkerað" sem rekin eru af ríkinu og hvort heilbrigðisstarfsmenn þessara kerfa og sjúklingar geti virkilega lifað mannsæmandi lífi í svona "sósíal súpu". Stórskemmtileg dæmi tekin frá t.d. Frakklandi, Bretlandi, Kúbu og Kanada. Jaaaahérna hér það var gaman að sitja í bíósal fullum af Kanadabúum þegar Moore tók fyrir hversu frábæra og ókeypis heilbrigðis þjónustu Kanadabúar fá hér (að þeirra sögn amk). Auðvitað bara straumur í eina átt og spilað "soldið" mikið á tilfinningastrengi áhorfenda en stórt hrós á hann skilið fyrir gerða þessarar myndar, vissi ekki hvort ég ætti að hlæja eða gráta. Etv fæ ég eitthvað að kynnast kerfinu betur hérna við Kanadastrendur en ég er á leið í atvinnuviðtal hjá sjúkrahúsapóteki St.Pauls sjúkrahúss í miðbænum núna 10 júlí og hlakka mikið til. "Pleisið" er víst rekið með sjóðum Kaþólsku kyrkjunnar. Kram/L

Engin ummæli: