miðvikudagur, 25. júlí 2007

Celebration of light við English Bay



Ég var að grúska í tölvunni hér í kvöld eftir afar hetjulegt útihlaup og mundi alltíeinu eftir að á næstunni var einhver svaka flugeldasýning á dagskránni. Hmmm ég "Googlaði" "Vancouver fireworks" og viti menn það átti einhver svaka sýning að byrja í kvöld kl tíu. Vildi svo skemmtilega til að það var eftir örfáar mínutur svo ég hjólaði "á milljón" niður að strönd til að fylgjast með. Var búin að gleyma hvað það er mikið bras að hjóla í síðu pilsi á hjóli með "typpaslá". Aðeins of mikið "show" í gangi þegar maður stígur af hjólinu og ekki mikið betra þegar maður reynir að dröslast á hjólið aftur ! Ströndin og allir garðar niður við sjó voru gersamlega pökkuð af fólki en ég tróð mér villimannslega í gegn um hrúguna niður að sjó til að fylgjast með. Það var skotið af pramma úti á sjó á móts við sk "English Bay" og einhverskonar "lyftutónlist" spiluð hér og þar í takt. Stóð ekki lengi yfir en vááá þetta var flott. Það var alveg heiðskýrt og logn úti og English Bay fullur af snekkjum, skútum og ferlega heppnum kayakræðurum. Þetta gerist ekki mikið flottara. Mér skilst, að þegar ég varð vitni af minni fyrstu flugeldasýningu um áramót á Akureyri (á síðust öld) að þá hafi ég lýst henni með þessum vel völdu orðum: "Sprengja skjóta loftið !! " með tilheyrandi undrunarsvip. Eitthvað svipað var í gangi hér. Ég tók fullt af myndum en engin nógu góð þar sem betri myndavélin er stödd ásamt Alex við Kluany Lake í Yukon (upp við rætur Alaska). Ég fékk því bara þessa ágætu mynd "lánaða" en svona leit þetta út.

Alex er núna í 2ja vikna jökla vinnuferð í Yukon þjóðgarði. Þar mun hann gista í tjaldi við sk Kluany Lake uppi á jökli með nýja rannsóknarhópnum næstu daga. Ég bíð spennt eftir að sjá myndir frá svæðinu sem er víst alls ekki ljótt. Það er þó ekki alveg sami lúxusinn á stráknum eins og hjá jöklarannsóknarfélaginu á Grímsfjalli þar sem menn gista í skála með tilheyrandi lúxusmat og í nesti er vín og gott viskí...jamm og svo ekki sé minnst á "náttúrulega" gufubaðið góða sem menn sprikla í hveragufu eftir blauta vinnudaga. Vonandi verður ekki mikil táfýla af tjaldfélaganum og vonandi fer ekki að rigna (he he, ein öfundsjúk) !

Lína vinkar frá Maple stræti :-)

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Greetings from Base Camp in Kluane Lake. Sæta! Alex