

Hó!
Vil byrja á þessu: "Hafrún ! Til hamingju með stórafmælið & Emma til lukku með útskriftina og allt annað - við hlökkum til að kíkja til ykkar til Denver !
það var enginn heima hér á Maple Stræti í vikunni. Við skelltum okkur í útilegu á vestur strönd Vancouver eyju. Ferðinni var heitið til Tofino. Okkur fanst áfangastaðurinn hljóma ágætlega þar sem þar er að finna vinsæl brimbretta og sjókayak svæði. Þar er líka sk. Clayoqout Sound en það er UNESCO eyrnamerkt svæði og þykir því "doldið spes". Við fórum með bílinn í ferju á Tsawwassen. Tsawwassen bær (hvernig segir maður þetta ??) er rétt utan við Vancouver og þar má finna eitt aðal "ferju terminal" Vancouver til Nanaimo og Victoria á Vancovuer eyju. Ferjan er um 2 klst á leiðinni og útsýnið minnir einna helst á að sigla um skerjagarðinn fyrir utan Stockholm. Skógi vaxnar eyjur sem skipið þræðir sig í gegnum, stundum á óskiljanlegan hátt ! Á meðan maður nýtur þess að horfa út má drekka "nunnupiss" (mín túlkun á þunnu kaffi) og japla á ágætis muffum sem fást um borð.
Það er gaman að keyra þvert yfir eyjuna frá Nainimo til Tofino. Það liggur bara einn aðal vegur þvert yfir (no.4) enda eyjan full af vötnum, ám, klettum og vogskornum ströndum. Brunuðum þarna í gegn í B-klass (sem eiginlega keyrir sig sjálfur :)) með tyggjó og Nelly Furtado innanborðs. Við skelltum upp tjaldi á "Bella Pacifica" tjaldstæði rétt utan við sk "Pacific Rim National Park". Þar vorum við, eins og vanalega, vöruð við "Svarta Bjössa" á svæðinu og vinsamlegast beðin að geyma matinn í bílnum. Hentum upp tjaldinu og fórum beina leið á ströndina og sulluðum í kyrrahafinu. Sleiktum upp vænan skammt af sólinni - ekki veitti af því það var hellidemba næstu daga! Þarna vorum við í töluverðri leti í nokkra daga, keyptum nauðsynjar eins og öxi til að hökkva í eldin á kvöldin og nokkrar "rauðar" í BC liqueur store í Tofino. Tofino er pínulítill bær en öll viðskipti þar í bæ virðast tengjast sjókayak, brimbrettum, hvalaskoðun og flugi. Það segir því sig sjálft hverskonar túrista og "local dudes" má finna þar í bæ :-) Skelltum inn myndum á albúmið okkar frá ferðinni - þær segja öðruvísi frá. Þessi staður fær fína einkunn frá okkur !
Bis bald. Lína & Alex
Engin ummæli:
Skrifa ummæli