föstudagur, 21. september 2007

Eftirlit með útihlaupunum...


Ég á það til að fara út að hlaupa eftir vinnu. Ekki hef ég þann lúxus hér að hafa þýskan "ofur - agaðan" hlaupafélaga líkt og ég hafði á Íslandi til að reka á eftir mér - svo þegar ég hleyp ein hérna dett ég stundum í þá gryfju að nenna ekki að klára alla kílómetrana hlaupandi og leyfi mér stundum þá leiti að labba aðeins upp bröttustu brekkurnar (já eða bara á flat-lendi ef mér dettur í hug) og fer að skoða húsin hér í kring aðeins betur og útsýnið...uhh og búðargluggana. Nýlega gaf Alex mér í afmælisgjöf það ágæta tæki..."Garmin forerunner"...sem er bæði frábært og örlítið óþolandi á sama tíma þar sem það er uppljóstrari. Þetta er gps tæki sem ég skelli á úlnliðinn og starta þegar ég byrja að hlaupa. Því fylgir nemi sem ég skelli um brjóstkassan og það sendir uppl. um púlsinn í tækið. Ok....á leiðinni les tækið allskonar parametra ss. hraða, hæðarmismun, stopp, púls og trakkar leiðina sem ég fer. Þegar heim er komið sting ég því í samband við tölvuna og þar sést leiðin á korti og allskonar tölfræði frá hlaupinu. Alex á það til að líta á skjáinn yfir öxlina á mér þegar ég skelli upplýsingunum eftir hlaupin í tölvuna og hananú...þá er allt á útopnu. Hmmmm ég get ekkert falið og verð að viðurkenna alla leti. Ef ég stoppa, hleyp hægt eða stytti mér leið þá kemst það alltsaman upp þegar heim er komið. Þessi sálfræðitryllir hefur því þau ágætu áhrif að ég hleyp hraðar en ella og örlítið lengra og reyni að stoppa ekki nema á umferðarljósum - annars verða niðurstöðurnar á skjánum heima eitthvað svo skömmustulegar ;-)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

þessi nútímatækni... ;) kveðjur til ykkar frá skítakuldanum hérna á eyrinni;) Kristín og co

Nafnlaus sagði...

Jahérnahér! Það væri nú sanngirni í þessu "ofur"-tæki ef það gæti nú líka mælt andlegu vellíðan sem hlýst af að skoða fallegar byggingar og spennandi búðargluggana.... Þá værum við tala saman ;0)
Kveðja frá einni sem lætur hlaup um lönd og leið, hvort sem er með eða án "hjálpar"-tækja.
Annars, kæra Lína það er alltaf ánægjulegt að lesa bloggið þitt, ég þakka fyrir mig! Bestu kveðjur af frónni Ósk

Lína og Alex: sagði...

# Alveg er ég sammála þér Ósk - það vantar alveg þennan stórsniðuga mælikvarða sem þú minnist á í tækið ! Geri svo ráð fyrir að þið Valdi séuð búin að koma ykkur vel fyrir í nýja húsinu - bið að heilsa ;-)

# Kveðjur til baka á eyrina Stína fína :)