Alex er þessa dagana á ráðstefnu í Banff til að kynna verkefnin sín á Yukon svæðinu. Hann skaust með strætó út á flugvöll og fór til Calgary þar sem hann keyrði til Banff ásamt nokkrum félögum sínum. Þar - uppi í fjöllunum er núna "flórsykur snjór" á toppunum. Þetta pikka ég upp eftir Alex. Í Tíról kallast það flórsykur snjór þegar topparnir eru farnir að grána. Velti því fyrir mér um leið hvað við íslendingar eigum skondin orð til að lýsa snjó fasa: "hundslappadrífa, slabb, krapi, slydda, hagl og þar fram eftir götunum...Eskimóar eiga þó víst að eiga til heilan helling af orðum yfir mismunandi snjó. Geri ráð fyrir að lönd með hærri hitatölur sem hafa lítið með snjó að gera séu ekkert að skreyta sín tungumál frekar og eigi bara eitt til tvö orð...aðallega "snjór" !!! Þessar snjópælingar hjá mér stafa eflaust af því að ég er farin að hlakka svo til að komast á skíði hérna. Vil endilega fá hörkuvetur, amk svona rétt utan við borgina í aðeins meiri hæð :)Í tilefni föstudags sleppi ég snillingnum honum Indriða lausum ásamt sönnum íslenskum baðverði. Pot í bumbu og góða helgi/Lína
Indriði
Íslenskur baðvörður.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli