
Jamm, við mættum !
Ég, Alex, Birna og Andrea ásamt nokkrum vel földum vínflöskum og hárbeittum tappatogara skunduðum á þorrablót hér í bæ.
Vissum ekki hverjum við áttum von á en úr varð hin besta skemmtun með tilheyrandi danstöktum og tá-blöðrum.
Þorramaturinn var þó langt frá því að vera þjóðlegir gráir slepjulegir hrútspungar eða sjálfala morkin lifrapilsa, það var "bara" roastbeef, kjúklingur og lax. Jú og ágætis tilraun til hangikets sem mig grunar að sé reikt nýsjálenskt lamb útbúið utan við winnipeg. Eftirrétturinn samanstsóð af vínartertu, pönnsum og kleinum. Einhverra hluta vegna þykir vínarterta voðalega merkileg hér og er vinsælt umræðuefni hjá v-íslendingum! Alex var reyndar spurður meira um vínartertur, eins og hann ætti að vita allt um þessa sultuklessu vegna vínarborgar. Jajamen. Ég átti von á stórum hóp af gamlingjum en það var fullt af eld spræku fólki á okkar aldri mætt á svæðið. Skelli hér inn nokkrum myndum.

(Skiltið hennar Yrsu..."Leifur landed first, just ask any Icelander" :)

(Þjóðlegra gerist það varla...smigluð vínflaska í lopaklæðum)
6 ummæli:
Afar íslenskt!
Okkur vantar íslendingafélag hérna þegar við fáum heimþrá. Það eru útlendingasamtök og við fórum á hitting þar um daginn. Þjóðirnar hópa sig eðlilega svolítið saman en íslendingahópurinn okkar er afar fámennur (aka við þrjú;). Við hittum tvo Finna og það var næstum því eins og að hitta íslending. Finnar eru æði, frábær hreimur og yndislegur húmor.
Gaman annars að sjá mynd af ykkur, hvenær ætlið þið að kíkja í heimsókn?
M&p koma um páskana og ég er að skipuleggja ferð til Kerala, svo ég verð orðin þjálfuð í að plana draumaferðina:)
Knus til ykkar beggja
Ella
Hæ hæ, já merkilegt hvað það getur verið gott að hitta "landann". Mínir vinnufélgar á labinu eru bindindisfólk og grænmetisætur frá Kína, Kasmír og Íran og eru alveg ágæt. Sem stendur er enginn evrópubúi við deildina (fyrir utan einn kennaraskrögg frá Zurich). Gott & blessað að kynnast ólíkum menningarheimum fólks en stundum væri ég alveg til í að hafa "landann" eða drykkjuglaðan finna við hliðina á mér á skrifstofu !
Mikið væri annars gaman að hitta ykkur, ætli við kíkjum ekki bara í heimsókn í kvöld...er í lagi að við mætum í kvöldma klukkan átta ?
Alltaf gaman að fylgjast með ykkur þarna hinum megin...
Ég var að lesa bloggið þitt um kindur.is og er ég sammála að þetta sé mjög gott uppátæki hjá íslenskum bændum. Pétur var svo hrifinn að ég hélt bara að hann væri á leiðinni að fjárfesta í einni rollunni... En, kannski síðar...
Var nokkuð rúmlega níræður kall þarna á þorrablótinu sem heitir Steve? Ef svo er, þá er hann víst frændi minn....
Knúserí
Hæ Ásdís...gaman að heyra frá þér :)
Já kindurnar eru magnaðar, ég hef verið nokkuð dugleg við að auglysa þá síðu hér við skólann við góðar undirtektir ! Sakna svo mikið lambaketsins heima að ég ætti etv að panta eina hingað. Varðandi Steve frænda þinn, ég hef ekki hitt hann ennþá...reyni að dansa meira við gömlu kallana næst og komast að þessu .Kram og bestu kveðjur/L
Hæ skvís
Eftir að hafa skoðað myndirnar af þorrablótinu þá var ég að átta mig á því hver ísfirðingurinn í Vancouver er. Mikið líður mér betur að hafa áttað mig á þessu ;)
Verð komin í sól og hita í Tyrkjalandi innan við viku.... engir skíðapáskar í þetta sinn... sniff, sniff.. smá eftirsjá ENN það líka gott að slappa af á ströndinni eða á sundlaugarbakkanum með einn kaldann!
Hafið það sem allra ljúfast
Ósk
Halló Ósk:) Páskar á Tyrklandi hljóma ofur vel - skítt með skíðin, er ekki búin að vera nægur snjór á Íslandi í vetur hvort eð er ;) Já ertu búin að bera kennsl á Birnu...etv skildar ?? Góða skemmtun og kveðjur til Valda.
Skrifa ummæli