
Alex minn á afmæli í dag 3 apríl :-) Íbúðin er full af kökulykt sem búið er að nostra við í nokkra klukkutíma með tilheyrandi nákvæmni og deigáti. Áætlað er að flytja farminn á UBC kampus á morgun og klára góssið í góðra vina hópi. Annars höldum við uppá daginn almennilega í Okanagan hluta Bresku Kólumbíu...nánar tiltekið á Silverstar skíðsvæðinu (um 450 km leið) ásamt 10 grad stúdentum úr lyfjafræðinni. Þangað keyrum við á föstudaginn, troðum okkur 12 samtals í hús sem við erum búin að leigja og skemmtum okkur á skíðum alla helgina. Svo erum við búin að plana þennan líka svaðalega matseðil og búið að kaupa byrgðir af lokal brugg bjór og víni. Skelli með mynd af húsinu - gríðarleg tilhlökkun í gangi hér:

Ég á svo eftir að skrifa um páskana, geri það einhverntíman fyrir næstu páska amk - við fórum með vinnufélögum Alexar til Whistler og gistum í 2 nætur. Alveg eðal helgi, skelli inn myndum á næstunni. Annars erum við bæði búin að vera á bólakafi undanfarið með tilheyrandi bloggleti. Alex að eiga við vistkerfið í Yukon og ég á labinu og að klára kúrs núna í vikunni sem og fyrirlestur sem ég þrusaði yfir deildina. Svo tekur við munnlegt próf um miðjan mánuðinn í þessum blessaða kúrsi "philosophy of science & experimental design". Hef ekki farið í munnlegt próf síðan í þýskukúrs í MA!
Hils/LoA
8 ummæli:
Til hamingju með afmælið Alex :-) og góða skemmtun á skíðum um helgina....
Þarf svo að fara að heyra betur í ykkur, knús í bili
Til hamingju með afmælið! :)
Innilega til hamingju með afmælið Alex. Hlökkum til að fá ykkur í heimsókn í sumar og þá lyftum við glösum og eldum eitthvað gott. Skemmtið ykkur vel um helgina. Heyrumst við fyrsta tækifæri.
Knús og kram, Didda og Héddi
Til lukku með daginn Alex! Spennandi helgi framundan hjá ykkur - þið kunnið svo sannarlega að njóta lífsins :) Ég læt Bláfjöllin duga nú um helgina en annars er vorfílingur farinn að gera vart við sig og er ég farin að hlakka til vorverka bæði að umbylta garðinum í Miðtúninu og svo að fara í sumarbústaðinn þegar Auður syss og hennar fjölskylda skila honum í lok apríl. Svo er Tyrkland aftur í ágúst, við Valdi getum ekki beðið að komast þangað aftur, íbúðin ægilega vel mubleruð og allez.
Hvernig er með ykkur, komið þið á frónna í sumar?
Góða skemmtun á skíðum
Ósk
Alex! - Ein sehr gutes Geburtstag!
Einar
Takk kærlega fyrir kveðjurnar frá Islandi. ALEX
Til hamingju með afmælið Alex! Hvað ertu svo orðinn gamall?
Knús og koss á báðar kinnar frá Indlandi
Ella, Konni og Mikael Tumi
Til hamingju með afmælið og skemmtið ykkur vel í Silverstar. Þetta verður ábyggilega alveg magnað. Ekki vera of full!
Skrifa ummæli