Saga Geirs Sveinfinnssonsar (áður óbyrt verk, höf ekki gefin upp að svo stöddu):
Það var fyrir tvæ hundruðum ára að maður að nafni Geir Sveinfinnsson nam land á stað þeim er kenndur er við hlíðina að vestanverðu í dalnum. Þar er um að ræða Geitafellsstað í Sverdal hinum forna og Tröllatussuskarð opnast í austurátt og brátt á haf út.
Geir var er hér var komið við sögu bláfátækur auðnuleysingi. Hann hafði verið rekinn úr heimabyggð sinni Viðvíkursveit í Hreppum, þá einkanlega fyrir meintan tólgarþjófnað frá séra Þorvarði Péturssyni í Víðidalstungu og ætlaðan hrossastuld frá Agnesi Hrólfsdóttur sýslumannsfrú frá Skjalmanesi. Skal það þó tekið fram strax að aldreigi hafði sannast formlega neitt glæpsamlegt athæfi á Geir, en þó höfðu mál farið á þann veg að Geir varð að bitbeini sveitunga sinna og féll í hans stað óþökk hin mesta er hann hafði þó hvergi til unnið, né þess heldur skilið átt. Var þó ekki hægt að fara lend með að illska sú er sveitungar Geirs höfðu sýnt honum síðustu misseri virtist einkum stafa af einhverslags öfund - enda hafði komið í ljós að hæfileikar Geirs voru miklir á þeim sviðum er hvað sjaldgæfast höfðu verið í sveit þessari tengd við getu eða kunnáttu manna. Þarna var um að ræða hæfileika Geirs til að kveða niður og berjast við drauga og í annan stað kunnátta hans við sultugerð. Það var engin tilviljun...
Aldrei að vita nema framhald komi síðar (höfundur ekki gefin upp að svo stöddu).
þriðjudagur, 13. maí 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Skemmtileg saga, bíð spennt eftir framhaldinu.
Góðar myndlíkingar.. ég sé fyrir mér hvernig Tröllatussuskarð opnast á haf út;)
Já það er víst fagurt um að litast við Tröllatussuskarð! Frh síðar ;)
Ekki segja mér að þetta skarð sé til í landfræðibókum.
Mér þótti þetta skemmtilegt gamaldags klám. Það mætti skola þessu niður með landa 'on the rocks'
kveðja úr steikinni.
Gaman af þessu... og gaman að gamalt og gott fólk skuli enn vera til og að gera skemmtilega hluti tólf tímabelti í burtu...
Kveðja frá Dubai...
Magnús...hinn eini sanni Mc Tumbo ???
Hvað er að frétta af þér ? Bestu kveðjur frá vestur ströndinni ;-)
Skrifa ummæli