mánudagur, 26. maí 2008
Hlustunarpípu hálsskraut
Ekki man ég eftir að hafa rekist á lækna í grænu klæðunum með hlustunarpípurnar hangandi um hálsinn röltandi niður Laugarveg, í biðröð í banka eða á kaffihúsi. Hérna við Broadway þar sem við búum mæti ég þeim daglega úti á götu og á kaffihúsunum. Svosem ekki undarlegt að þeir séu á rölti hér þar sem Vancouver General Hospital er hérna rétt við hliðina...skil bara ekki hvernig þeir nenna að rölta um með hlustunarpípurnar svona dinglandi um hálsinn. Finnst það frekar skondið þar sem þeir eru gjarnan með bakpoka líka og þar mætti etv fleigja græjunum ofaní. Þetta er etv "hip og kúl" hérna. Heima skella þeir þeim gjarnan í vasann. Pípan sumsé alltaf með um hálsin - ég er að hugsa um að biðja næsta svona lækni sem ég mæti í banka eða jafnvel strætóstoppustöðinni að vera svo vinsamlegur að hlusta mig og jafnvel kíkja í eyrun í leiðinni !
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli