Í kvöld vorum við að þrífa og ganga frá íbúðinni sem við bjuggum í síðastliðið ár. Núna búum við á algerum eðal stað og erum frekar grobbin með okkur hérna. Erum staðsett 5 "blokkum" ofan við ströndina og allt morandi í trjám og gömlum timburhúsum. Heyrum bara fuglasöng í stað sírenuvæls & glápum á Óreon út um gluggan (amk fyrstu nóttina) þegar hausinn er á koddanum. Við búum núna á miðhæð í 3ja hæða timburhúsi og leigjum af konu frá Zurich - allt voða "tipp topp" eftir því eins og vænta má af fólki frá Sviss. Á efri hæðinni býr sprækur gaur frá Suður Afríku og á neðri hæðinni spekingur með hund, þau höfum við ekki hitt ennþá. Það brakar og brestur í öllu hér eins og vænta má í gömlu timburhúsi og eldhúsið er skemmtilega gamaldags sem er bara ferlega notalegt. Með "slottinu" fylgir okkar eigin bakgarður með allskonar matjurtum og frú Huber skildi eftir gasgrill handa okkur sem og útiborð. Nú förum við bara að "bóndast" og rækta í matinn úti í garði! Getum þó ekki haft neina skepnu á beit þar sem lítið er um gras í bakgarðinum. Inni í stofu er svo gamall arin en við fylltum hann bara af kertum þar sem timbur-rammanum er varla treystandi lengur fyrir hressilegu báli ! Skelli með nokkrum myndum - fleiri á flickr. Já svo er gestaherbergið auðvitað sérdeilis notalegt og við viljum endilega fara að fá einhvern í heimsókn - bara mæta á staðinn. Hér er adressan:
2639 West 5th Ave
Vancouver, BC
V6K 1T2
Canada



8 ummæli:
Hæ hæ;) vá til hamingju með þetta fína hús;) það væsir ekki um ykkur þarna... kveðjur frá Stínu Gjé
Vá, þetta er aldeilis kósí hjá ykkur, þið standið ykkur vel :-) Knúserí úr Hafnarfirðinum
Takk takk - hér er gott að vera :)
Alveg hreint ljómandi crib...tillykke
kv frá DK Ólof
Snilldar slot - kaffibrennsla og allur pakkinn
Hlakka til að koma til ykkar - bestu kveðjur úr snjónum - vonandi komumst við á snjóbretti um helgina, það er búið að opna á Dalvík.
mk Hallur.
Þetta er ekkert smá yndislega kanadískt draumahús! Arin og allt, lítið, krúttlegt og heimilislegt.
Ég sé litlu grísina fyrir mér hlaupandi í garðinum... :)
Við ættum að heyrast fljótlega á skypinu.
Knús
Ella
Hallur & Co: Góða skemmtun á Dalvík í snjónum ! Frétti annars af ykkur í gegnum frænku mína sem hittir Fönn og Dögun reglulega þessa dagana á leikskólanum - lítill bær Ak ;)
Ella - grísir segirðu, já þeir færu vel í garðinum ;) Já skypumst endilega við tækifæri.
muahaha
oh Lina, ekki þannig Grísir..
En ef þú hefur áhuga, þá á Guttormur örugglega góð afkvæmi í Húsdýragarðinum. Þau reyndar virtust of stór fyrir krúttlega matjuartargarðinn þinn;)
Skrifa ummæli