Bíllin okkar fór í reglulegt eftirlit í morgun klukkan átta. Hann þurfti að "leggjast inn" hjá umboðinu svo fínt var eftirlitið (bíllinn fær miklu betra eftirlit en við sjálf...höfum slaufað tannlækni alltof lengi, olían á bílinn klikkar þó ekki). Ég var auðvitað búin að ákveða að skella mér bara eldsnemma í strætó í staðinn í vinnunna, sú ákvörðun var auðvitað tekin rétt fyrir svefn. Ekki að spurja að því þegar ég vaknaði að ég nennti auðvitað alls ekki hálftíma fyrr á fætur svo ég slaufaði strætó (vísvitandi) og pantaði bara leigubíl. Í staðinn hlaut ég yndislegar auka 20 mínútur kúrandi uppí rúmi. Þessar 20 auka mínútur kostuðu mig 17 dollara. Þær voru þó alveg þess virði. Þessa 17 dollara fékk indverskur leigubílstjóri. Á þessu 15 mínútna ferðalagi sagði hann mér (aðeins of hress svona snemma) að hann væri að fara til Indlands á morgun í 2 mánaða árlegt frí. Eftir 25 ára dvöl hér fer hann heim í sitt 8 þúsund manna þorp árlega til að taka þátt í krikket "túrnamenti"..."
það eru svo margir leikir spilaðir og svo þekki ég alla þorpsbúana svo ég þarf amk 2 mánuði til að ljúka öllum krikketleikjum, matarboðum og slíku". Hann hafði þó töluverðar áhyggjur af líkamlegu formi fyrir krikkettinn eftir að sitja svona mikið í leigaranum og potaði í bumbuna sína og hló. Þá var ég mætt í vinnuna, næst á dagskrá var sækja kaffi og svo synda í öllu pappírsflóðinu, ég sá ekkert á eftir þessum dollurum í leigarann. Þetta var nú bara í morgun. Ég auglýsi hinsvegar eftir undanförnum vikum...hvert fóru þær, tíminn bara flýgur ? Síðan síðast höfum við:
- brotið amk 4 glös við uppvask
- orðið vitni að upptöku á bíómynd hér fyrir utan gluggann
- rennt til Washington annað slagið á Mt. Baker slóðir
- skroppið á bráðamótökuna sísona eftir saklaust útihlaup
- fengið strengi í hægri rasskinn og hægri handlegg eftir keppnisskap í badminton
- plantað kaffibaunum, sítrónufræjum og örðum fræjum fyrir grænmeti
- verið að vinna eins og fatlafól
- skroppið á snjófljóðanámskeið
- ristað töluvert af kaffi
- borðað yyyndislegt lambalæri í góðra vina hópi (kærar þakkir Helgi og co)
- etið sushi með leigusalanum
- gleymt bolludeginum
- keypt snotra flösku af koníaki
- fjallaskíðast á Paul ridge og Mt.Seymour
- skroppið í helgarferð til Whistler með sænskri vinkonu og ektamanni úr vinnunni
- fengið ógurlega mikið af fínum púðursnjó í Whistler og fáum meira næstu helgi :)
- etið gott ostafondú
- verið skömmuð (SÞH) fyrir að mæta ekki í grænni blússu í vinnuna á St. Patrick´s degi
- ekki lagað mikið til
Frá ferð á Mt. Baker í byrjum mars:-)
6 ummæli:
Ahhh gaman að heyra frá ykkur. Dásamlegur þessi leigubílstjóri.
Frábært! stendur þig vel;) gott frí annars sem leigubílsstjórar fá...:) kv Stínan
Skil að vikurnar hverfi og þú botnir ekki neitt í neinu ef að þú eyðir öllum helgum í svona hvítri paradís. Var nú bara svoldið ánægð með púðurfæri í Hlíðarfjalli um daginn en núna......Bestu kveðjur sigríður ásta
Takk fyrir innlitið...kveðjur á klakann ;)
Í dag er 19 Apríl (spark í rassinn;)
he he..afturendinn fann fyrir þessu
Skrifa ummæli