sunnudagur, 5. ágúst 2007

Laugardagur og The Lions


Aldrei þessu vant fór ég á fætur fyrir klukkan 7 (nota bene að morgni til) á laugardegi! Smurði nesti og vippaði mér útí bíl til að sækja Kristínu, Kathy og Liesl. Kristín býr í Vancouver og er í framhaldsnámi í málfræði við UBC í Vancouver. Hún er líka frá þeim ágæta bæ Akureyri. Kathy og Liesl eru frá Vancovuer eyju - upprennandi kennarar. Við keyrðum að Lions Bay við Howe Sound til að príla upp að vel þekktum fjallstindum sem kallst The Lions (um 1500 m há kvikindi). Við lögðum af stað í þoku eftir vel brattri hlikkjóttri leið í gegnum skóginn. Aldrei hef ég verið "étin lifandi" af svona mörgum flugum í einu. Allt krökkt af Moskító, Black flies og öðrum bæði óþekkum og óþekktum flugnategundum á leiðinni. Black flies virtust hrifnastar af mér og bitu mig til blóðs, Moskító virtust hrifnastar af Kristínu en Liesl borðaði flestar Moskító á leiðinni. Eftir því sem við fórum hærra fjölgaði kvikindunum.

Eftir brölt yfir trjáboli, grjót og skriðu komum við uppúr skýjunum og fengum eðal útsýni yfir Howe Sound. Skömmu seinna vorum við komin í snjólínu og bröltum og "boulderuðum" yfir snjó og grót upp að "the saddle" rétt fyrir neðan tindana tvo. Allt fullt af snjó í ágúst mánuði í yfir 20 gráðu hita ! Létum duga að fara upp í um 1400 m þar sem var flott útsýni yfir Vancouver í suður átt og Howe Sound í norður átt. Að klífa restina, þ.e. upp á vestari tindin á The Lions leit út fyrir að vera "óðs manns æði" án línu og klifurbúnaðar. Enda vel þekkt að fólk hrapi þar niður þverhnípið. Vorum ekkert alltof spenntar fyrir slíku og príluðum niður. Við fórum hæst að "söðlinum" Staðsetning fyrir Google Earth notendur: 49°26´36.96"N 123°12´00.27"W.



Skellti inn nokkrum myndum á myndasíðuna okkar. Kristín tók hinsvegar mjög góðar myndir í þessari ferð og þessar tvær myndir hér að ofan eru frá henni. Linkur: http://www.flickr.com/photos/stinamagga
Rúmum 7 tímum seinna komum við niður og keyrðum í næstu sjoppu og mikið "askoti" var nammið og gosið gott eftir þessa ferð. Í dag sit ég með strengi í öllum útlimum og les fyrir bóklegt próf fyrir ökuréttindi í Bresku Kólumbíu sem ég ætla að taka eftir helgina. Ég heyrði í Alex ofan af jökli úr gervihnattasíma. Símasamband varir á meðan næsti gervihnöttur sveimar yfir og þannig næst samband í um 6-7 mínútur í senn og svo þarf að bíða eftir að næsta hnetti. Vinnan uppá jökli gengur vel og strákurinn lendir í Vancouver á næsta föstudag með slúðursögur og mikið skegg frá Kluane Lake jökli.

Þar til seinna....Lína ;-)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sælar
Mikið er ég fegin að flugurnar gerðu ekki útaf við ykkur fjallgeiturnar! Það væri nú svakalega gaman að sjá myndir af ykkur eftir allt flugu-sogið, blóðugar og bólgnar....uhhh (ein sem vill eitthvað krassandi) ;0) En annars, verulega huggulegar myndir, ég verð bara að segja að þú ert ansi öflugur ljósmyndari. Takk fyrir mig og kærar kveðjur af frónni. Ósk

Lína og Alex: sagði...

Sælar sælar & takk.
Ég taldi yfir 60 uppblásin bit...flest á herðunum og niður bakið og á enninu á mér. Útlitið er "undurfagurt" eftir því og ekki til sýnis ;-)
Bestu kveðjur/L