miðvikudagur, 15. ágúst 2007

"Roadtrip" til Banff, Jasper og Glacier National Parks



Hej. Þá hafa skilað sér í hús í vikunnni bæði kærastinn ofan af jökli í Yukon og einnig 11 risastórir kassar með póstinum sem við sendum frá Íslandi í maí mánuði. Ansi var ég ánægð með að fá Alex í hús...en blendnar tilfinningar með kassahrúguna ! Þar er að finna 4 pör af skíðaklossum, 2 pör af "fjallbomsum", bækur, vetrarföt og annað dót. Við hentum og gáfum fullt af dóti áður en við fórum en samt er allt þetta eftir !!! Ég er að velta þessu fyrir mér þegar ég sé útigangsmennina hér fyrir utan dragandi aleiguna í einni innkaupakerru eða bara á bögglaberanum - hmmmm hentugt, en ég hugsa að ég taki þó ekki upp þann lífsmáta heldur skreppi í IKEA og kaupi hillu undir þetta alltsaman :-)

Annars erum við þessa dagana að skipuleggja "roadtrip" um þjóðgarða klettafjallana og leggjum "í ann" næstu helgi. Verðum á þvælingi um Banff, Jesper og jökulþjóðgarðana dagana 17 -26 ágúst. Þetta er svæði skammt frá landamærum Kanada og Bandaríkjanna. Fyrir þá sem þekkja hina árlegu "Banff mountain film festival" sem ÍSALP stendur fyrir einu sinni á ári á Íslandi þá kannast þeir sömu við staðinn. Við höfum farið undanfarin 3 ár og erum því spennt að komast loksins á þetta svæði en það er þekkt fyrir að vera ansi "snoturt svæði" og svalur staður fyrir þá sem stunda fjallpríl, klifur, skíði og jaðarsport af ýmsu tagi. Já og svo er það hinn póllinn...líka afar vinsæll viðkomustaður af undarlegum túristum sem kjósa að ferðast pakkaðir ca 50 stk saman í rútu og reka við í víðóma.

Vill svo skemmtilega til að við hittum vini okkar í Banff sem koma frá New York um næstu helgi og helgina þar á eftir er planið að renna til Calgary og pikka upp Einar bróðir á flugvellinum (Einar þú mátt koma með Koníak eða Viskí sem input í matarboxið í "hytte"). Myndin er af staðnum þar sem við eigum pantað tjaldstæði fyrstu dagana. Fáum okkur svo sumarhús síðustu dagana. Annars bara allt gott að frétta frá okkur í Vancouver - af fingrunum þremur er það að frétta að þeir eru ennþá lamaðir og ég klifra því lítið á næstunni. Kemur þó lítið niður á daglegu lífi nema hvað ég get ekki hneppt skyrtuhnöppum, borað í nefið með vinstri og ég held á hnífapörum eins og villimaður (amk gafflinum). Sumsé "peanuts". Ha'de godt./L

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ,hæ skvís...
Já ég skil ekki hvernig í ósköpunum manni tekst að sanka að sér svona miklu dóti. Við vorum að koma úr útilegu. Það liggur við að það þurfi meðal verkfræðing til þess að koma útilegudótinu aftur fyrir í geymslunni ;)
Bestu kveðjur úr Mávahlíðinni :)

Lína og Alex: sagði...

Hæ :)
Já held að óhemju stór bílskúr sé málið í framtíðinni ! Í augnablikinu er stofuskrautið okkar m.a. 2 hjól og klossar - gasalega smart ! Heyri í ykkur við tækifæri, komin tími á ærlegt "tjatt". Kveðja frá Maple ;-)

Ella sagði...

Hvað kom fyrir puttana?
Þetta verður ævintýri, myndin lokkar að minnsta kosti.
Nú er stefnan tekin á Hyderabad, India uppúr miðjum Október svo þið getið farið að panta miða í "skrepperíið" :)
Hafið það gott

Lína og Alex: sagði...

Hó Ella..spennó! ég var að skoða Hyderabad á Wikipedia...líst vel á þennan stað! Sé ekki betur en að þarna búi "ekki nema" um 4 milljónir - bara "þorp" á indverskum skala ;-) Hver veit nema við "skreppum" !!! Hilsen.

Nafnlaus sagði...



Bara að láta vita af mér. Þetta er spennandi líf hjá ykkur í fyrirheitna landinu. Við Katrín er núna að skipuleggja 10 daga Ítalíuferð og svo þurfum við að huga að þýskalandi.

Hlakka til að lesa meira af ferðum ykkar.

BO

P.s bílskúrinn er málið...(og geymsla útí bæ)

Nafnlaus sagði...

Hæ hó
Datt hér inn í gegnum síðuna hjá Hönnu Marín, og mátti til með að kvitta. já máttur barnalandsins er mikill ;)
Sé að það er stuð hjá ykkur og greinilega engin lognmolla frekar en fyrri daginn !
Hlakka til að fylgjast með áfram :)

Kveðjur frá Akureyri
Edda, Addi og Kolfinna
http://barnaland.is/barn/50677/

Ella sagði...

Til hamingju með stelpuna Edda og Addi!
Hann mikael tumi minn fæddist ekki svo mikið seinna (lok sept) svo þau eru á svipuðum aldri.
Ég ætlaði að skoða myndirnar af henni en það er bara lok lok og læs!
Hvernig er það lína mín eruð þið ekki alveg á lífi eftir ferðalagið?
Þú verður að skrifa fleiri ferðafréttir:)
knus
ella

Lína og Alex: sagði...

Hej allihopa :) Jamm við keyrðum ásamt Einari í um 10 klst í gær frá Banff via Whistler til Vancouver !!! Usss þetta var eðal ferð. Myndir og sögur á næstunni...þegar fer að rigna næstu daga þá verður ágætt að setjast niður og skrifa ;-) Addi og Edda...gaman að fá ykkur í heimsókn hér "long time no see" !!! Edda sendu mér endilega lykilorðið á síðuna á: shedinsdottir@gmail.com
Björn & Katrín: Hlökkum til að heyra sögur frá Ítalíu :)

Hilsen/ LoA