föstudagur, 7. september 2007

Boeing verksmiðjan í Everett & Dreamliner 787

Um síðustu helgi skruppum við í smá könnunarleiðangur yfir landamærin, nánar tiltekið til Washington ríkis til að skoða Boeing verksmiðjuna í Everett (Everett er skammt frá Seattle). Við kipptum Kristínu sem býr hér í Vancouver með okkur en annars var flugstjóri í þessari ferð Einar Örn Héðinsson frá flugmálastjórn og flugfreyjur í þessari ferð voru af austurrískum og íslenskum uppruna. Boeing verksmiðjan er stödd í bæ sem kallast Everett sem er skammt frá Seattle. Byggingin sem hýsir Boeing verksmiðjuna er stærsta bygging í heimi m.t.t. rúmmáls og flatarmálið ekki nema um 400 þús fermetrar undir einu þaki !

Hóp af fólki var smalað upp á svalir þar sem samsetning vélanna fer fram og þar horfðum við yfir nokkrar Boeing 777 sem verið var að pússla saman næst okkur. Þar sáum við mismunandi stöðvar m.a. þar sem bensíngeymslum vélanna er komið fyrir, hreyflum, innréttingum, rafmagnsbúnaði, lendingarbúnaði o.s.frv. Hlutar vélarinnar eru fluttar til Everett frá ýmsum heimshornum þar sem þeim er pússlað saman. Grunar þó að Héðinsson hafi haft álíka gaman af að horfa á mexíkanska ofurpæju sem var með í hópnum ;-)

Dreamliner - 787: Svona er hún kölluð, nýjasta flugvélin frá Boeing og falleg er hún ! Get ekki annað en sett hér mynd, lögunin á vængjunum er ansi "móðins" og þeir eru gerðir úr "carbon fiber" en ekki áli eins og aðrar vélar - fyrir vikið verður vélin miklu léttari. Þetta verður því langdrægasta vélin frá Boeing og sú umhverfisvænasta. Svona svakalega sætri flugvél má pússla saman á aðeins 3 dögum ef allir hlutar hennar eru í húsi ! Hún er þó ekki búin að fara í jómfrúarflugið en það er á dagskrá núna í haust.


Þetta var stór fríhelgi í Kanda enda mánudagur s.k. "Labour day" og allir í fríi...við héldum því að fólk væri mest að slappa af í fríi á sunnudeginum og því lítið mál að skella sér yfir landamærin. Staðreyndin var hinsvegar sú að við vorum stopp í samtals 6 klst tíma þennan dag við landamærastöðina U.S.A./Canada - skoðuðum hana því afar vel líka....etv aðeins of mikið en vel þess virði þar sem verksmiðjan var stórmerkileg ! Hér fyrir neðan má sjá Kristínu kippa fagmannlega í stýrið af mikilli gleði :)

Engin ummæli: