föstudagur, 14. september 2007

"ÓÓóóó Rómeó...." undir berum himni með gæsakvaki


Garry og July voru ansi rausnarleg og buðu okkur leikhús í gærkvöldi...úti á túni undir tjaldhimni til að sjá Rómeó og júlíu. Þetta er ansi vinsæll atburður hér í borg og við þurftum að mæta 1 klst fyrir sýningu til að býða í röð til að komast undir tjaldhimininn, enda búið að "nútímavæða" svolítið stykkið og skella leikurunum í föt skv nýjustu tísku Verona borgar þessa dagana og sviðið er skemmtilegt þar sem það er enginn tjaldveggur aftan við það og því horfir maður beint út á haf og yfir borgina. Þar sem sviðið var svona opið þá var því frekar spaugilegt þegar gæsapör flugu á bakvið sviðið annað slagið með tilheyrandi "kvaki" á meðan Rómeó og Júlía voru í miðju kafi í dramatískum setningunum. Mér fannst líka gaman að því að þessi leikari sem lék rómeó labbaði berrasaður um sviðið þegar hann kom undan sænginni frá Júlíu (þessi afturendi fær þó varla nema 6 prik af 10 hjá mér). Já það er margt sem gleður augað ! Á morgun er svo vinnufélagi Alexar búin að bjóða okkur ásamt öðrum með í bátsferð upp Howy Sound á mótorbát. Það væsir því ekkert um okkur þessa dagana :) Bis bald/L

Engin ummæli: