Eftir að ég stíg á hjólið hef ég annan hálftíma til að opna glirnurnar endanlega þegar ég stíg pedalana fæ vind í andlitið og hjóla frá Kitsilano yfir Burrard brú niður í miðbæ Vancouver. Útsýnið er ekki af verri endanum, öll norðurfjöllin og sjórinn og miðbærinn (ég skellti með mynd af Burrard brú). Leiðin liggur í gegnum megin umferðaræð miðbæjarins og inn í risastóra hjólageymslu St.Paul's sjúkrahúss þar sem ég mæti í vinnu. Þaðan rölti ég upp á næstu hæð og skvera mér í græn sjúkrahúsföt og íþróttaskó.
St.Paul's er kaþólskt sjúkrahús og er eitt stærsta kennslusjúkrahúss Bresku Kólumbíu. Ég vinn á klínískri deild St'Pauls apóteks og þar er að finna ágætis þverskurð af mannfólki þessa heims. Það vinna rúmlega 50 lyfjafræðingar í apótekinu og um 100 tæknar á 3 vöktum. Ég er endalaust að hitta nýtt fólk sem vinnur í apótekinu og það getur verið strembið að muna nöfnin enda fólk allstaðar að. Í síðustu viku vann ég bara með broti af öllu þessu fólki og eftir að hafa kynnt sjálfa mig komst ég að því að hinir voru m.a. frá: Kanada, U.S.A., Singapoor, Grikklandi, Rúmeníu, Úkraínu, Englandi, Bosníu, Japan, Kína og Afghanistan! Afghaninn fær mörg prik frá mér þar sem hann gefur mér karamellu á hverjum degi en hann hefur afleitan tónlistarsmekk þar sem hann spilar lög í tölvunni af einhverri útvarpsstöð frá heimalandinu. Apótekið þjónustar allar deildir spítalans og það eru starfandi klínískir lyfjafræðingar á hverri deild, klínísk lyfjafræði er hvergi eins sterk í Kanada og á þessu sjúkrahúsi og starfsemin því öflug eftir því. Ég er í 2ja mánaða þjálfun til að byrja með og það felur í sér að ég er nánast aldrei að gera það sama dag eftir dag. Planið er að ég fá að kynnast allri starfseminni áður en ég fer að sinna mest því sem ég kem til með að gera sem verður blöndun á krabbameinslyfjum og öðrum innrennslislyfjum og þjónusta við deildir í kringum það. Í síðustu viku var ég röltandi um deildir spítalans í mismunandi byggingum á 6 hæðum með lófatölvu apparat, skutlandi lyfjum út um víðan völl í tilheyrandi tölvustýrðar lyfjageymslur. Á einu morgunrölti um deildir svona stórs sjúkrahúss má sjá nokkrar ólíkar aðgerðir í gangi í gegnum gler á OR deild, x marga sjúklinga æla, einhver fær hjartaáfall, grátandi aðstandendur, daðrandi starfsfólk, yfirheyrslur á læknanemum, útigangsmenn á neyðarmóttökunni, nokkrir að ná sér eftir hjartaígræðslu...og þar fram eftir götunum. Á einu bretti sé ég á hverjum morgni þá félagslegu súpu af allskonar fólki sem býr í Vancouver, infæddu og aragrúu af innflytjendum. Það er einmitt einn af þeim skemmtilegu hlutum við að kynnast nýju landi...mannflóran !
Ha'de/Lína
6 ummæli:
Þetta hljómar spennandi. Dugar einn bolli af rótsterku kaffi til að vekja alla fingurnar til meðvitundar?
Howdy,
GSTL,Target
Howdy. Well fingurnir eru smám saman að vakna til lífsins...dofinn er að minnka, vantar bara smá kraft í þá - allt að koma. Hilsen/L
Jiii, hvað er gaman hjá ykkur! Frábært að lesa af öllum ævintýrunum ykkar og innilega til hamingju með vinnuna:)
Seint hefði mér nú dottið í hug að fröken Sigurlína myndi vakna fyrir allar aldir til að hjóla í vinnuna...;)
Kv.
Kristín Þóra
Hæ Kristín...nei seint hefði ég trúað þessu sjálf. Það er svona þegar ekkert "flex" er í boði þá fyrst get ég þetta ;-). Ég frétti annars yfir hafið að það væri að fara að fjölga í fjölskyldunni - Til hamingju :-) !!!
Takk fyrir það:)
Stefnan er einmitt að ráða tvo inn á FED þar sem fólk er að tínast út, eignast börn, fara í nám og flytja til Egilsstaða;)
Allt að gerast...
Skrifa ummæli