
Maðurinn: Schultze. Þýskur námuverkamaður með stóra bumbu, tilheyrandi axlabönd hatt og gleraugu. Býr einn og borðar bjór og pulsur í kvöldmatinn og bítur í hráan lauk með. Fer að sofa í síðum náttserk. Segir lítið en spilar þeim mun meira á nikkuna. Fer á eftirlaun ásamt 2 námu vinum sínum. Lífið snýst um að drekka bjór með félögunum, veiða af brúnni og spila polka. Scultze heyrir suðurríkja múskik í útvarpinu kvöld eitt og lífið tekur nýja stefnu. Hann hleypur strax til læknis vegna þessa breytta tónlistarsmekks og heldur að það bendi til veikinda ! Reynir að spila þessa byltingarkenndu músík fyrir ofur íhaldssama "depprimeraða" þorpsbúa. Endar einn á ferðalagi um Louisiana mállaus með nikkuna að leita að blús siglandi á "að hruni komnum" mótorbát á Missisippi.
Þetta hljómar etv undarlega en við horfðum á þessa bíómynd um helgina og hún er bara óborganleg að mínu mati og ég ákvað því að deila þessu með ykkur. Etv má finna hana í hillum á íslenskum leigum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli