mánudagur, 22. október 2007

Tíról jól


Eftir að hafa hringsólað um völundarhús flugfargjalda og leitarvéla, klórað okkur í hausnum og misst nokkur hár fundum við fínasta flug í jólafríið. Þá er það sumsé klappað og klárt að við fljúgum yfir Atlantshafið um miðjan desembermánuð með millilendingu í Toronto. Við munum svo skröltast með lestinni frá Munchen til Landeck. Falleg leið inn í Alpana. Keyptum miða á heimasíðu Lufthansa en komumst að því að við fljúgum í öll skiptin með vélum frá Air Canada. Hver botnar í þessum heimi flugsins ! Jólunum verður svo eitt hér og þar í Tirol, á skíðum, borðandi og súpandi snafsa. Það fara líka að verða síðustu tækifæri að fara út að rölta með 70 kg heimilishundinn Diego, hann er orðinn 12 ára sem samsvarar háaldra gamalmenni. Hann er þú mun sætari og hærðari og þrjóskari en mannfólkið á níræðisaldri ! Við erum nokkuð spennt yfir því að mæta á svæðið áður en aðal túristavertíðin hefst milli jóla og nýárs. Fyrir 2 árum mættum við 5 dögum fyrir jól og höfðum brekkurnar nánast útaf fyrir okkur. Við ætlum þó að prófa a halda uppá áramótin hér í Vancovuer í ár...óákveðið hverning & hvar enn sem komið er.

2 ummæli:

Fjóla Heiðrún sagði...

....og hvert á að senda jólapakkann?
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið!

Lína og Alex: sagði...

Sendi þér adressuna ;-)