
Ég var fastagestur í vesturbæjarsundlaug þegar ég var í háskólanum, enda Hagi (byggingin það sem lyfjafr. er kennd) beint á móti lauginni. Einhverntíman tók ég meðvitaða ákvörðun um að taka með mér... "alveg óvart" handklæði úr lauginni merkt Reykjavíkurborg. Síðan þá hef ég tekið ástfóstri við þetta hálfgötótta en annars ágæta handklæði og það hefur notið þeirra forrétinda að hafa farið víða, þurrkað blautt hár í Svíþjóð í 1 ár og Texas í 1/2 ár og farið í nokkur ferðalög um Evrópu og hangið á snúrum hér og þar. Núna er handklæðið komið til Bresku Kólumbíu og því er flaggað hér líkt og í hinum löndunum og fólk spyr forvitið um áletrunina. Ég álít þetta svo góða kynningu fyrir Reykjavíkurborg að ég hef ekki haft samviskubit yfir þessum stuldi hingað til. Á myndinni er því flaggað í hálfa stöng í Yukon...hér norðarlega á vestur strönd Kanada.
4 ummæli:
Ja hérna Lína mín - kenndi ég þér ekki í æsku að það væri ljótt að stela? Þetta hlýtur að vera fyrirgefið þar sem auglýsingagildið er ótvírætt. Knús frá múttu
Jú jú þú komst því örugglega til skila, þetta er bara einhver "óþekkt". Það væri annars etv nær að hafa handklæðið frá Akureyrarlaug - hmm þú kanski reddar því he he ;-) Kveðja frá Maple/LoA
Það er auðvitað algjört grundvallaratriði að vera búinn góðu handklæði á ferðalögum!
Jamm mitt handklæði er með næringarefnum með banabragði í vinstra horninu. Svalt finnst þér ekki ? ;-)
Skrifa ummæli