
Við Alex áttum frí á föstudaginn og fórum loksins á skíði :) Við héldum að brekkurnar yrðu okkar þar sem það var jú virkur dagur. Þegar við komum á staðinn (vel fyrir hádegi) var allt fullt af fólki og grunsamlega margar númeraplötur merktar Washington ríki..."úps" það var víst þakkargjörðarhelgi Bandaríkjamanna þessa helgina og ansi margir mættir frá Seattle. Við höfðum því ekki bæði fjöllin, alla 3300 hektarana og 38 lifturnar útaf fyrir okkur ! Svæðið fær margar stjörnur og færið var fínt. Við settum nokkrar myndir á myndasíðuna okkar.
Við fórum aftur á skíði á laugardaginn. Í þetta skiptið með vinnufélaga mínum honum Shaun. Hann bauðst til að keyra og bauð okkur svona líka fallega að sækja okkur á laugardagsmorgni KLUKKAN SEX (við þjáumst jú bæði af morgunofnæmi!). Þetta var nánast óhugsandi fyrir okkur en stundum gerir maður heimskulega hluti í lífinu og hvað gerir maður ekki til að komast í snjóinn svo við vorum mætt stundvíslega út á gangstétt þennan morgun.
Shaun stoppaði á leiðinni í "vegamannaverkavinnukaffiskúr" og keyptum Tim Houtons kaffi og djúpsteikta kleinuhringi. Tim Houton var víst frægur íshokkíkappi hér í Kanada og það er búið að nefna kaffihúsakeðju eftir honum. Kanadískir kollegar mínir eru alltaf að benda mér á að fara þangað að kaupa kaffi...ég spyr "nú, er kaffið betra þar"...svarið sem ég fæ er yfirleitt "uhh það er svona og svona mikið ódýrara en Starbucks og önnur kaffihús og þú færð double double grande fyrir x mörg sent". Ég held að þeim sé skítsama um hvernig kaffið smakkast, bara nógu mikið nunnupiss! Það var annars fínt að fara með Shaun - strákurinn þekkir svæðið og gat lóðsað okkur um brekkurnar. Annar súper dagur á skíðum og veðrið fínt. Við ætlum þó að forðast að sitja í bíl framar þar sem Shaun er bílstjóri. Ég þarf að fá mér betri örorkutryggingu áður en ég sest uppí bíl með kauða. Aksturslagið eftir því...hver svosem orsökin er hmmmm. Við fórum svo svöng eftir daginn beint í íslendingapartý hjá Halli og Andreu á UBC campus þar sem var galdraður fram góður matur og ljúffengt gin með tilheyrandi tóniki og eins og alltaf...frábær félagsskapur !
Að lokum: Við erum að flytja frá Maple sýróp stræti á Broadway. Þar höfum við útsýni yfir fjöllin og miðborgina og gaseldavél til að leika okkur með. Ekki orð um það meir...bara nokkrar myndir sem við tókum í íbúðinni í dag og myndatextin er eitthvað á þessa leið: "hlæ hlæ hlæ, bros út að eyrum" (fleiri myndir á myndasíðunni okkar). Útsýnið er alvöru, tekið út um stofugluggann :)


4 ummæli:
Vooohhhóóó.....
Get ekki beðið eftir að mæta í innflutningspartý. Þvílíkt útsýni!!
Til lukku með placið.
Ekki amalegt útsýni!
Ég sit hér rúmföst og sárkvalin (já ég á svakalega bátt) með Gullfoss og Geysi, brjálaða beinverki og hita. Mikael er með Gullfoss, Konni skipti á amk. fimm bleyjum í nótt. Þetta var víst mátulegt á okkur fyrir að vera að þvælast hérna niðurfrá í skíta-pöddulandi;)
knus
Ella
Bara smánöldur. Kaffihúsakeðjan heitir Tim Hortons. Kanadamenn munu berja þig ef þeir sjá þig fara svona með sitt elskulega kaffihús (sem er ekkert merkilegra en önnur slík).
Hvur andsk...! Þakka leiðréttingu á stafsetningu. Ég má því líklega vera fegin að vera á lífi eftir að hafa viðurkennt fyrir þeim að mér þætti kaffið vera algert sull/L
Skrifa ummæli