miðvikudagur, 28. nóvember 2007

Ísland - best í heimi ?

Bróðir minn lét mig vita að hann ætlaði bara að vera heima yfir jólin og ekkert að vera á þvælingi til útlanda enda virðist svo ágætt að vera á Íslandi sbr...

Á heimasíðu Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP) má finna niðurstöður af árlegri útgáfu af "Human Development Report". Tilvitnun: "Skýrslan sem kom fyrst út árið 1990, er unnin af UNDP í samvinnu við fjölda sjálfstæðra sérfræðinga um allan heim. Human Development Report beinir hvert ár athyglinni á ákveðið alþjóðlegt efni eins og til dæmis lýðræði, mannréttindi eða alþjóðavæðingu, sem sett er fram með lýsandi tölfræði fyrir meira en 180 lönd" (http://www.undp.se/article.asp?Article_Id=2354)

Hérna eru niðurstöðurnar í ár:
Human Development Index rankings

Ekki amalegt :-)

3 ummæli:

gummih sagði...

Já, skrítið að sjá Austurríki svona neðarlega samt. Hefði haldið að það ætti að vera hærra á listanum. Svo er áhugavert að sjá að Iraq og Afganistan hafa verið tekin af listanum.

Nafnlaus sagði...

Er þetta spurningin um að drífa sig heim aftur ????

Eða ekki,
Andrea

Lína og Alex: sagði...

Tja - nú nenni ég ekki að flytja meira í bili og er afskaplega ánægð með hnattstöðuna í ojeblikkeð. Hver veit nema maður flytji aftur til Íslands einhverntíman, þar er gott að vera - það eru þó svo margir ágætir staðir á þessari jörð sem vert er að skoða fyrst ;-)

Já þetta með Austurríki - Alex segir að þeir eigi ekki skilið hærra sæti ;-)