þriðjudagur, 4. desember 2007

Afmæliskveðja og flutningar


Taraaaaa ! Ólöf vinkona okkar í baunalandi á afmæli í dag - til hamingju með daginn...hip hipp hurraa (lesist með dönskum hreim).









Af okkur: Við erum flutt :) Síðasta vika fór að vinna og flytja. Á hverjum degi eftir vinnu pökkuðum við hluta af dótinu okkar og fluttum kassa fram á kvöld. Eitthvað svona: Henda drasli í kassa, niður tröppurnar á Maple stræti, inn í bílageymslu.....brrrrummm bruuuumm og inn í næstu bílageymslu og svo upp 9 hæðir með allt góssið og svo aðra ferð bruuuummm bruummm. Þetta var dagskráin nokkur kvöld í röð - svaka stuð !

Við erum svaka ánægð með okkur hérna uppi á 9. hæð. Það bergmálar reyndar ennþá svolítið inni hjá okkur enda ekkert inni í íbúðinni nema eldhúsborð, dýna og tölvan. Við sváfum fyrstu nóttina hér á tjalddýnum og borðuðum Cheeriosið á stofugólfinu framan við útsýnisgluggann. Um helgina skruppum við í IKEA og keyptum helstu nauðsynjar til að byrja með...eldhúsborðið og rúmdýnu (áttum engin húsgögn). Látum það duga þar til við komum heim úr jólafríi. Við vorum líka ansi ánægð að fá netsamband aftur í dag en við höfum verið netlaus síðustu vikuna og fráhvarfseinkennin voru orðin töluverð.

Á sunnudaginn kom hér loksins almennileg snjókoma. Við þutum beint út úr húsi í morgunmat á Granville island, prúðbúin í dúnúlpur og tilbehör og gríðarlega ánægð með snjóinn. Vancouver borg tekur sig vel út í hvítu. Snjórinn var þó ekkert að staldra við - á leiðinni heim rigndi hressilega á okkur og allt í slabbi og dúnjakkarnir beint í þurrkarann. Við drukkum jólaglögg og piparkökur þegar heim var komið....keypt daginn áður sem "combo" í IKEA, beint frá Sverige !
Í gær fórum við svo í mat til Brad og Kerry (vinir okkar frá Alberta) algerir listakokkar sem búa upp á hæðinni nálægt Simon Fraser Háskóla. Það var notalegt að sitja í stofunni, hlæja og borða í beljandi rigningu fram á kvöld.

Bestu kveðjur/ Lína & Alex

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með nýju íbúðina :)
Bestu kveðjur úr Mávahlíðinni.

Lína og Alex: sagði...

Takk takk & bestu kveðjur til baka ;)

Nafnlaus sagði...

Til lukku með flutninginn;)

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með nýju íbúðina og fína útsýnið :-) Knús og kossar