Stína vinkona átti afmæli í dag (Hmm að vísu komið vel yfir miðnætti hér í Vancovuer og komin 9 des) Við Alex sendum bestu kveðjur til þín lengst í austur og langt í norður alla leið til Akureyrar ;-)Héðan: Vancouver er svo skemmtileg fyrir það að vera full af fólki frá öllum heimshornum. Las um dagin að um 40 % borgarbúa (um 2 milljónir) eru fæddir annarsstaðar í heiminum og stór hluti þeirra frá Kína og Indlandi. Núna höfum við eignast nýja vini frá Kashmir, þau Akhlaq og Sumaiya - Akhlaq er félagi minn við háskólann.
Í vikunni mætti ég í nokkra daga á rannsóknarstofuna við UBC háskóla til að kynnast þeim verkefnum sem ég verð að vinna að. Við erum 6 sem vinnum saman. Brian er höfuð og herðar rannsóknarstofunnar og er leiðbeinandi minn og Akhlaqs. Akhlaq er lyfjafræðingur frá Kashmir í norðurhluta Indlands og hann er líka í PhD námi. Hann er nýkomin frá Saudi Arabíu ásamt spússu sinni henni Sumaiya sem er kennari. Svo er það félagi Xudong Dong sem er tannlæknir frá Hong Kong, stelpa frá Kína (kann því miður ekki að skrifa nafnið hennar ennþá) sem er í mastersnámi og loks kemur post doc frá Danmörku í febrúar sem er stelpa...upprunalega frá Íran.
Ég hef bara góða sögu að segja af Indverjum, hef unnið með nokkrum áður. Fyrir nokkrum árum var ég að vinna að lokaverkefninu mínu við háskóla í Houston og þar voru margir samstarfsfélagar frá Indlandi. Ótrúlega almennilegt fólk og ekki verra að þeim finnst gaman að gefa manni gott að borða, Akhlaq er engin undantekning. Hálftíma eftir að ég hitti hann í síðustu viku var hann strax búin að bjóða okkur Alex heim til sín í mat og spurði hvað við vildum borða og klukkan hvað. Næsta spurning var hvort við vildum hafa eftirréttin sætan eða ekki. Ég sagði bara "surprice us Akhlaq" og vildi ekki panta matseðil.
Við fengum besta mat sem við höfum smakkað hjá þeim hjónum. Á borðinu voru 4 mismunandi réttir, m.a. listagott lambakjöt og nokkrar tegundir af salötum og brauðum, saffran te og ávextir ! Sumsé stórt hlaðborð fyrir fjóra, borið fram með mikilli gestrisni og videói frá brúðkaupinu þeirra fyrir 2 árum. Við borðuðum í sófanum í stofunni, hjónin afslöppuð í jogging göllunum og á táslunum og Akhlaq afsakaði sig og hló, sagðist aldrei nota hnífapör og át með fingrunum. Við fengum svo útskýringar á brúðkaupsvídeóni og þau brostu út að eyrum. Brúðkaupið stóð yfir í nokkra daga (hraðspólað ansi oft yfir videóið!) og var fyrir alla ættina , eða um 400 manns og allir fengu endalaust af mat. Sumaiya var í nýjum brúðarkjól á hverjum degi. Kjólarnir höfðu allir sitthvorn litin og skartið og farðinn aldrei eins. Það væri efni í langa ritgerð að lýsa brúðkaupinu þeirra frekar. Vinir okkar þau Stefan og Addie eru nýbúin að gifta sig hjá dómara í New York. Örlítið öðruvísi stíll þar á ferð en þau fóru bara í gallabuxunum og giftu sig og fóru svo og fengu sér bjór á eftir til að fagna og létu svo slektið og vinina vita með tölvupósti þar sem var mynd af kvittuninni fyrir plagginu fyrir hjónabandinu og svo þau að súpa bjór - svolítið öðruvísi stíll !!!Núna þurfum við Alex að leggja höfuðin djúpt í bleyti til að ákveða hvað við eigum að elda fyrir Akhlaq og Sumaiya þegar við bjóðum þeim í mat. Við höfum aldrei upplifað aðra eins gestrisni eins og í þeirra húsi í kvöld. Það verður þó ekki fyrr en í Janúar sem við getum boðið þeim í mat, Alex fer til San Fransico á morgun á ráðstefnu og kemur á næsta föstudag, við förum svo til Austurríkis á næsta sunnudag - Jahérna, tíminn flýgur áfram !!!!!
8 ummæli:
Ég mæli með að þið bjóðið þeim í íslenskt lambalæri. Vijay, indverskur vinnufélagi minn talar um hvað honum finnst íslenskt lambakjöt rosalega gott... enda hef ég kannski líka auglýst það aðeins, þrátt fyrir að vera orðin grænmetisæta :)
Me me
Íris
Já ég var einmitt að hugsa það sama að það væri skemmtilegast að geta boðið í íslenskt lamb...bara spurning hvernig ég get reddað því hérna í Vancouver. Getur þú keypt íslenskt lamb í Köben ? ...minnir að ég hafi séð slíkan lúxus í Aldi búðunum í Köben á sínum tíma. Ajö/Lína
Hljómar vel, getur þú ekki komið því í kring að við stofnum matarklúbb með þessum hjónum - þau elda og við sköffum hráefni !! Kannski ekki sanngjörn skipting en þessar lýsingar líta afar vel út hér að framan.
Það var rosalega fínt jólaboðið í gærkvöldi - brjáluð stemming á íslendingunum. Þið verðið að mæta næst. Restin af liðinu á jólaballi núna en lærdómurinn heldur mér heima.
Það væri gaman að hitta ykkur fyrir Austuríkisferð - kannski kaffibolli á laugardaginn fyrir brottför ??
Kveðjur af campus,
Andrea
Já Andrea...við höfum ákveðið að halda fast í okkar nýju Kashmir vini, gætu kennt okkur "trix eða tvö" við eldamennskuna ofl. Já leiðinlegt að þetta hafi stangast á við jólaboðið en við getum vonandi mætt á næsta ári. Kaffibolli á Laugardaginn hljómar vel ;-) Gangi þér vel með lesturinn !
Hæ vinkona;) takk fyrir kveðjuna;)
Talandi um lambalæri...það nýsjálenska er vel nothæft þó að auðvitað sé það ekki alveg eins gott og það íslenska.
Hugmynd að matseðli; snittubrauð með laxasalati, hrátt lambakjöti í forrétt, góður fiskréttur í aðalrétt og svo himnesk sæla með rótsterku kaffi að hætti Línu
Howdy,
F...Jóla
MMMm gott ráð Fjóla....en þau borða ekki fisk - gikkir !
Getur ekki bara verið að þau hafi aldrei smakkað góðan fiskrétt ? Gráupplagt að koma þeim upp á bragðið með því að hafa úrval af fiskismáréttum í forrétt. Td. snittur með graflaxi, laxasalati og hráum sítrónulegnum fiski.
Rauðrófubakan gæti verið gott innlegg í aðalrétt
Ég skora á þig að taka smá áhættu. Það má alltaf skella slatta af karrý yfir allt saman ef þeim líkar ekki :-)
Skrifa ummæli