föstudagur, 16. nóvember 2007

Allt á kafi í snjó í Austurríki

Svona líka góðar fréttir - huuureeyyyy ! Í fyrra var nánast snjólaust um jólin í Tirol og við þurftum uppá jökla í nágrenninu til að komast í góðan skíðasnjó - þetta lítur miklu betur út í ár og okkur farið að kitla í iljarnar ...Fréttir frá Austurríki mbl

Hér í Bresku Kólímbíu lítur allt út fyrir góðan vetur líka. Whistler skíðasvæðið á að opna á morgun. Alex var að eignast nýja klossa fyrir fjallaskíðin (þessir svörtu og skær bleiku sem hann keypti fyrir 7 árum voru orðnir eitthvað svo "80's"). Hann eyðir góðum tíma í að skoða þá vandlega þessa dagana með sama sælusvip og hann setur upp þegar hann smjattar á góðu súkkulaði.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

frábært;) hljómar vel;) að fara á skíði í Austurríki er deffinetlí á listanum hjá mér um það sem ég ætla að gera um ævina;)kveðjur til ykkar;)

Lína og Alex: sagði...

Hæ stína...Hver veit nema maður verði búsettur þarna í ölpunum einhverntíman...þá komið þið bara í gestaherbergið og fáum okkur öllara í brekkunni !
...við sjáumst víst ekki þessi jól - bið að heilsa á eyrina og knúsaðu Hönnu litlu frá mér

KA sagði...

mmmm..... ljúft....
Hver veit nemi við þyggum ykkar frábæra boð í Tirol. Er einmitt að leita mér að passlega litlum skíðum handa mér :) Verðum í bandi - K