Lífræn hvað !!!
Þessa dagana erum við að skoða auglýsingar um íbúðir til leigu á svæðinu og nýlega rakst ég á óborganlega auglýsingu. Allt sem er lífrænt er voða vinsælt hérna í Vancouver sem er svosem gott og blessað en þetta slær öllu út og ég bara verð að deila þessu með fleirum...
"...Stórkostlegt og kósí 100% algerlega lífrænt og umhverfisvænt heimili til leigu með lífrænu ullarteppi á gólfum, bannað að nota ólífræn hreingerningarefni/þvottaduft eða sterk ilmvötn. Leitum að yndislegum náttúru unnendum....segðu okkur frá (MIKILVÆGT) þínum lífræna/náttúrulega fókus í lífinu..."Hér er linkur á auglýsinguna:
Lífræn íbúð
Ha'en go wkd !
laugardagur, 17. nóvember 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Þetta er geggjað - mundi henta mér ágætlega nema hvað ég sé ekkert athugavert við að lofa hundum og köttum að velta sér á lífrænu ullargólfteppi ;-)
Fjóla
Jamm grunaði að þetta væri eitthvað fyrir þig ;-) Varðandi teppið þó...ég myndi ætla að það væri bara best fyrir hunda og ketti að velta sér í grasinu eða næsta kartöflugarði frekar en á lífrænu ullarteppi /Hilsen L
Skrifa ummæli