Fyrr í haust samþykkti prófessor við lyfjafræðideild UBC háskóla að vera leiðbeinandi minn fyrir doktorsverkefni. Umsóknin þurfti þó formlega að fara frá honum í gegnum deild sem kallast "Faculty of Graduate Studies" og hún ákveður endanlega hver fær að komast að og hver ekki. Í dag fékk ég svar og háskólinn býður mig velkomna og ég byrja á fullu í doktorsverkefni fyrstu vikuna í Janúar. Þetta verður því mín vinna næstu 3-4 árin ef allt gengur vel.
Ég hef komist að því að í þessum geira eins og flestum öðrum þá munar öllu að hitta fólk í eigin persónu og kynna sig og hvað maður hefur gert miðað við að senda einfaldlega týpíska umsókn frá skeri úti í Atlantshafi. Allavega...þá gekk þetta alltsaman upp að lokum og ég hlakka til að byrja. Við Alex erum búin að senda inn umsókn um íbúð á UBC campus en það er sami háskóli og Alex vinnur fyrir. Við komumst vonandi inn núna eftir áramótin. Komandi vetur fer því í nördaskap og skíðamennsku ! Hér fyrir neðan er mynd af campus.
...Farin út að borða eitthvað svaðalega gott í tilefni góðra frétta :-)
9 ummæli:
Til lukku Lína mín - ekkert að gefast upp í fyrstu tilraun. Já það getur komið sér vel þrjóskan.
Kveðja frá mútt
Heyrðu kæra frænka, allir hér í Sjúkrahúsapótekinu biðja eð heilsa þér. Nú kynni ég mig framvegis sem frænku þína. En mig langar að vita hvað þú ætlar að gera, hverskonar doktor ég kem til með að eiga fyrir frænku. Knús og Knús elsku frænka mín, þín Sigrún frænka hennar Línu í Vancover
Glæsilegt hjá þér Lína....til hamingju með þetta.
Bið að heilsa Alex.. :)
kv. Óli G í Danmörkinni
Frábært Lína mín.... til hamingju og bestu kveðjur til Alex
paps
Innilega til hamingju. En auðvitað er pínufúlt að nú færð þú að sjá Brian miklu oftar en ég.
Hjartanlega til hamingju Lína!
Bestu kveðjur frá
Ósk og Valda (og nýja fjölskyldumeðlimi Miðtúns 18 en það er persneskur kisinn Ljómi)
Takk takk & kveðjur tilbaka :)
Elsku Lína mín, langt síðan ég fór inná síðuna ykkar og greinilega ýmislegt búið að gerast síðan síðast. Ég óska þér innilega til hamingju með doktorsnámið, alltaf eitthvað spennandi að gerast hjá þér.... Hvernig er annars vinnan á sjúkrahúsapótekinu? Á eitthvað að koma heim á næstunni?
Bestu kveðjur frá Pétri og litla krúttilíus
Biðjum að heilsa Alex :-)
Töff fréttir - til lukku!
Kveðjur til ykkar frá Hjallaveginum
Skrifa ummæli