laugardagur, 10. nóvember 2007

Tai Chi

Ég tók þá djörfu ákvörðun í vikunni að kaupa mér aðgang í líkamsræktarstöð hér í nágrenninu. Ég hef ekki komið inn á slíka stöð síðan snemma í vor - bara stundað letiskokk enda alltof gott veður til að húka inni. Fór á fyrstu æfinguna í fyrradag og afleiðingarnar eru nánast lömun vegna strengja hér og þar og góð afsökun fyrir að mæta alls ekki strax aftur. Held að eitthvað mýkra í takt við kínverska leikfimi (Tai Chi) sé ágætis hugmynd. Datt það bara í hug eftir að hafa horft á gamlann mann sýna snilldar góða takta niður við strönd í morgun. Ég læddist út úr húsi eldsnemma til að krækja morgunbyrtuna til að taka myndir, vopnuð Pentax og kaffibolla. Athyglistvert hvað það er mikið líf í borginni á þessum tíma dags - en ég verð örsjaldan vitni af öðru en koddanum mínum á þessum tíma um helgar. Fannst þó merkilegast að fylgjast með "gamla" sem var mættur á hjóli niður að strönd í hvítum "amerískum" strigaskóm og lét ekkert trufla sig í rúman klukkutíma á meðan hann stundaði sitt Tai Chi (hmmm...lítur þó etv meira út eins og "brake dans" á myndinni).

Engin ummæli: