Eftir rúmlega 30 klst ferðalag frá Vancouver stóðum við hálf rangeygð en glottandi hér inni á stofugólfi við Urtlweg í Landeck. Við áttum tengiflug frá Toronto, það var ekta hressandi snjóstormur að ganga yfir Toronto sem olli því að um 300 áætluðum flugferðum var frestað vegna hvassviðris. Við teljum okkur þó bara einstaklega heppin í ár þar sem okkar flugi var bara seinkað um nokkra klukkutíma. M.a. af því að flugmaðurinn var fastur í Montreal! Ok þá er bara að setjast og súpa bjór. Gaman að segja frá því að þegar við loksins vorum komin út á flugbraut og vélin átti að taka af stað þá kom upp viðvörunarljós fyrir hreyflana. "Bamm"...vélin aftur til baka í skoðun í nokkra klukkutíma og svo þegar búið var að ganga úr skugga um að flugvélin væri laus við "brotið stýri eða bilaða vél" þá þurfti að spreyja kvikindið aftur með ísvörn. Við sátum í vélinni í rúma 4 klst áður en hún fór af stað. Þetta gekk þó bara fínt í ár, síðustu 2 ár höfum við alltaf misst af tengiflugi vegna veðurs. Það eina sem angraði mig í ár var að Air Canada var með alltof mikið úrval af mjólk og appelsínusafa í vélinni en ekkert koníak! Svo er ég að hugsa um að koma með afar "prófessjonal" tillögu um að öll flugfélög hafi byrgðir af valíum fyrir ungabörn með eyrnabólgur sem geta ekki hætt að gráta í 8 tíma flugi. Greyjin litlu, nokkur voru búin að gráta úr sér lungu og lifur - og foreldrarnir úrvinda eftir því.
Það er frábært veður í Tirol þessa dagana, heiðskýrt, kalt og brakandi snjór. Skelltum okkur á skíði í gær á lokal skíðasvæði. Aaahhhhh... Engir túristar mættir, bara nokkrir gamlir tírólskir pensjónistar, með þykka leðurhúð og tilheyrandi harðan talanda. Við höfðum brekkurnar nánast útaf fyrir okkur. Jamm, Breska Kólumbía er falleg en slær ekki ölpunum út! Erum búin að eyða morgninum í að skerpa skíðin og sulla á þau heitu vaxi. Farin út að leika...bis bald.
miðvikudagur, 19. desember 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Frábærara fréttir.......ekkert skemmtilegra en að njóta þess að vera í flugvél. Fólk borgar víst stórfé fyrir hverja ferð.
Hlökkum til að sjá ykkur um jóli.
BOKAT
Við hugsuðum einmitt mikið til ykkar þegar við sáum í fréttunum að allt flug væri stopp í Toronto. Það er gott að vita að þið hafið komist alla leið að lokum.
BOKAT...hlökkum til að hitta ykkur um jólin og skíða með ykkur :-) Verð að viðurkenna að ég hef því miður aldrei lært að meta skemmtanagildi ókyrrðar í lofti þrátt fyrir að borga mikið fyrir. Alex skilur ekkert í mér. Koníakið hjálpar þó heilmikið !
Mainland stræti: Hafið það gott um jólin í Vancouver ;-)
Jólakveðjur úr Whistler ;-)
Búið að kveikja upp í kamínunni og flestir búnir að taka út brekkurnar og hér snjóar og snjóar verður geðveikt færi þegar þið mætið á svæðið.
Gleðileg jól,
Andrea og co.
Skrifa ummæli