Tilvitnun hefst:
"Það er merki um snautt sálarlíf að dvelja um of við líkamlega hluti, t.d. að iðka íþróttir um of, eta um of, drekka um of eða verja miklum tíma til fullnægingar öðrum líkamlegum hvötum. Slíkt skal aðeins gert sem hjáverk, en alhug snúið að andanum." (Kafli XLI úr handbók Epiktets "Hver er sinnar gæfu smiður", Dr. Broddi Jóhannesson ízlenskaði) Amen !!!
Skv ofangreindri speki félaga Epiket höfum við átt alveg hreint einstaklega snautt sálarlíf um þessi jól (meiri apakötturinn þessi Epiket - þetta stenst bara ekki!).

Það var alveg þess virði að fljúga yfir hálfan hnöttinn og til baka með grátandi ungabörn sem sessunauta í um 30 klst ferðalagi sitt hvora leið. Við áttum einstaklega góð jól. Fyrstu dagana í Landeck vorum við svo rugluð eftir flug yfir níu tímabelti að við vöknuðum um klukkan fimm alla morgna og fengum okkur morgunmat með Cörlu. Það var nú meira hlaðborðið alla daga. Heimsent brauð úr bakaríinu og álegg frá slátraranum sem er fjölskylduvinur. Rabbað um heima og geima fram að sólarupprás. Um það leiti er klukkan samt bara um sjö! Því er upplagt að skella sér inn í stofu og undir teppi og horfa á Danny Crane og félaga í "Boston Leagal". Eftir að hafa eflt andann með glápi á þessari amerísku lagasyrpu skelltum við okkur vanalega í skíðafötin og uppí brekkur. Fyrstu dagana í Krahberg (krákufjall) sem er "lokal" skíðasvæði Landeck búa (myndin að ofan er tekin þar)og líka í St.Anton og Lech.
Föstudaginn 21 Desember fórum við þríeykið til Innsbruck. Byrjuðum á að kaupa byrgðir í matarbúrið á markaðnum og drukkum jólaglögg. Alex fór þvínæst í háskólann í Innbruck "í vinnuna" í nokkra klst en hann er þar með smá verkefni í fjarvinnu. Á meðan rölti ég um þessa sjarmerandi borg og smellti af myndum.

Á þorláksmessu lærði ég alveg nýja aðferð til að útbúa jólaglögg. Sk. "Feurzangenbole". Carla keypti sérstakar sítrónur frá Sikiley og skellti í nokkra lítra af rauðvíni ásamt appelsínum og tilheyrandi kryddum. Allt hitað í potti en svo kemur það skondna við alltsaman. Ofaná pottinn er sett götótt stálplata með sykurkeilu. Svo er sykurinn gegnumvættur með rótsterku rommi og loks kveikt í öllu saman. Sykurbráðin drýpur svo ofaní vínið með tilheyrandi slatta af Stroh. Svona lítur þetta út:

Á hverju ári á aðfangadag hittist fjölskyldan og drekkur snaps eftir smá rölt í kirkjugarðinum. Það er stórfínt og stresslaust að sitja bara og súpa snaps frameftir degi og fara svo heim og elda jólamatinn.


Á milli jóla og nýárs hittum við ýmsa góða vini frá Tirol og svo komu Kata og Björn í heimsókn frá Wurzburg. Við skelltum okkur saman á skíði til Lech í "keisaraveðri" og ákváðum að borða hefðbundið Kässpätzle og Bratwurts í pásunni í stað þess að fá okkur súrefni í flösku á diskó súrefnisbarnum. Svo skemmtum við okkur ágætlega við að drekka glögg og skoða stórundarlega ofursnobbaða búð með fólki af annari plánetu...held ég amk. Hér fyrir neðan er Kata að kíkja á fjallstoppana í Lech og myndinni fyrir neðan (af fallega fólkinu) rændi ég frá bokat.

.jpg)
Við vonum að allir heima hafi átt góð og notaleg jól og skemmtileg áramót.
Hilsen/LoA
2 ummæli:
Hæ! Líst mjög vel á Feurzangenbole hjá Alex...
Takk annars fyrir mjög skemmtilega samveru um daginn :) Ég bíð eftir að komast aftur í fjöllin að æfa mig.
kveðja, Kata
hæ hæ
Ekkert smá fallegt! Alltaf gaman að skoða myndir;)
kv Stínan
Skrifa ummæli