Höfum verið frekar upptekin á nýju ári við ýmislegt:
- Borðuðum allt Nurnberg marsipanið frá þýskalandi (gekk þó fljótt fyrir sig)
- Lagfærðum "kjarnorkusprengjuna" hér heima
- Keyrðum fram og tilbaka í IKEA með tilheyrandi pússli á húsgögnum
- Sóttum sófa sem við keyptum af pari í norður Vancouver (húrra fyrir Craigslist!)
- Alex með flensu (líklega subbuvírusar úr jólafluginu)
- SÞH að koma sér fyrir á nýja "vinnustaðnum" við UBC háskóla og mæta í kúrsa
- Tekið aðeins út lokal skíðasvæðið "Cyress" í Vancouver
Merkilegast af öllu á nýju ári er þó líklega ferðin okkar í dag til múslimska slátrarans frá Bangladesh til að kaupa halal lambakjöt. Forsaga þess er að við buðum vinum okkar Akhlaq og Sumaiya frá Kashmir í mat í dag. Röðin komin að okkur eftir það frábæra veisluborð sem við fengum hjá þeim fyrir jól. Við ákváðum að steypa saman íslenskum og tírolskum hefðum og elduðum gúllash úr Tirolskri uppskriftarbók frá ömmu Alexar með lambakjöti í stað nautakjöts. Vandin er bara sá að vinir okkar eru múslimar og skv íslömskum lögum er ekki sama hvernig skepnunni er slátrað ef kétið á að fara uppí munn og ofaní maga. Við fórum á stúfana eftir "Halal" kjöti þar sem skepnunni er slátrað skv "Dhabīḥah" aðferð !
"Halal" er arabíska og þýðir "leyfilegt" og vísar til alls þess sem er leyfilegt skv lögum íslam. Dhabīḥah slátrun er þannig háttað að það verður aflífa skepnuna með því að skera hana á háls til að henni blæði út eins hratt og kostur er, þannig er kjötið talið hreinna (ætla ekki að lýsa þessu frekar til að valda ekki frekari ógleði en það eru heilmiklar pælingar á bakvið þetta, trúarlegar sem og aðrar). Akhlaq benti mér á vinsælasta halal kjötsalan á svæðinu og við Alex keyrðum í hinn enda bæjarins til að fara til slátrarans (hvað gerir maður ekki fyrir vini sína!)
Dhaka Bazar heitir kjötbúllan og eigandinn er frá Bangladesh eins og nafnið gefur til kynna (Dhaka ku vera höfuðborg Bangladesh). Pínulítil búð með undarlegt vöruúrval en alveg eðal þjónusta. Á meðan við biðum spjölluðum við við indverja sem var í mánaðarlegri ferð til að sækja heila geit til að skella í frystinn fyrir fjölskylduna. Hann sagði okkur að þetta væri besti kjötmarkaður í Vancouver (hóst hóst!). Loks kom röðin að okkur og sveimér þetta var ansi gaman. Kjötsalinn sótti allskonar lambaskrokka inni í kæligeimslu og sýndi okkur. Þetta leit stórvel út svo við sögðum "rúmt kíló takk". Hann varð alveg hlessa, þarna virtist venjan frekar vera "einn skrokk eða tvo takk". Hann fær líklega ekki marga svona undarlega hvítnefja viðskiptavini sem kaupa bara rúmt kíló !
Heim fórum við að elda. Ofnbökuð ítölsk snittubrauð í forrétt, lambagúllash með smáréttum í forrétt og eplapæ með ís í eftirrétt. Mmmmmmm lambakjöt...loksins og það var súpergott ! Vinir okkar frá Kashmir virtust borða með bestu list og við skemmtum okkur konunglega við matarborðið við að ræða ólíkar matarvenjur. Þau voru alveg hissa á eplapæinu, höfðu ekki smakkað slíkt áður ! Við Akhlak höfum ákveðið að prófa að stofna matar "slash" köku klúbb í lyfjafr.deildinni. Eitthvað eins og hið eðal föstudagskaffi í gömlu vinnunni heima. Sjáum til hvernig tekst til.
Farin að sofa, skíði í Cypress í fyrramálið :)
Læt hér fylgja með "fyrir - eftir" kjarnorkusprengju myndir frá Broadway.
Fyrsta myndin er tekin á nýársdag!


3 ummæli:
Hádí...
Rétt að kvitta fyrir innlitið :) Sit hérna að horfa á þátt sem sýnir ferð á Hvannadals-hnjúk ...bara að veðrið hefði verið svona þegar við þrömmuðum þarna upp. Held að við verðum að skella okkur aftur einhverntíma þegar þú ert á klakanum...svona til þess að njóta útsýnisins. Ég kannast ekkert við umhverfið sem sýnt er í sjónvarpinu....enda ekki hægt að segja að útsýnið hafi verið lengra en að afturendanum á næsta manni í línunni :)
Svo langt síðan ég hef heyrt í þér...þurfum að "hittast" á skype fljótlega :) Bið að heilsa Alex.
Kveðja,
Guðrún Anna
Gott að sjá að þið eruð á lífi og greinilega eldhress að vanda.
Kaffi á campus fljótlega??
Kv. Andrea
Sælar sælar,
Go'dag GÁP: Já mig minnir að ég hafi farið út í að skoða bara afturendana á fólkinu þar sem annað útsýni var ekki að hafa ! Alveg til í aðra ferð við næsta tækifæri. Já og við þurfum að fara að "Skypa" (bara þessi ansans tímamismunur!)
Andrea mér líst vel á campus kaffi. Verðum í bandi í vikunni (voandi fóru ekki fleiri fyllingar í kúlurnar!)
Kram/Lína
Skrifa ummæli