þriðjudagur, 29. janúar 2008

Nokkrir cm af snjó og umferðin í klessu

Við höfum allataf hjólað útí háskóla það sem af er janúar mánuði. Um 20 km, fram og tilbaka, hér er það minnsta mál fyrir utan brekkuhelv.. upp að UBC (er að vinna í að líta kvikindið jákvæðari augum). Göturnar eru alltaf auðar, aldrei rok og veðrið búið að vera vægast sagt frábært. Í gær var sagan önnur og við tókum strætó. Það hafði snjóað uþb 10 cm lagi af snjó yfir borgina í nótt og það er frekar undarlegt að fylgjast með viðbrögðunum. Við búum uppá 9 hæð yfir Broadway, þar er ansi víðsýnt upp og niður þessa umferðargötu. Séð frá stofuni:

Hugsun A (horft beint fram í átt til fjalla): Yndislegur hvítur snjór yfir öllu !
Hugsun B (horft niður á tær og Breiðstæti): Hva! Allt meira og minna stíflað og bílar spólandi í aðliggjandi götum..útaf smá slabbi !

Hér eru fáir vanir að keyra í snjó og vetrardekk er eitthvað sem engin kaupir. Ergo - allt fer í hnút. Svolítið gaman að súpa kaffibolla heima og fylgjst með þessu útum gluggann en minna skemmtilegt að fara út og hoppa uppí strætó. Leiðin í skólan sem venjulega tekur um 35 mín að hjóla tók í dag 1,5 klst standandi í strætó því umferðin gengur snigil hægt. Í hvert skipti sem hann stoppaði eða tók af stað nuddaðist ég utan í illa lyktandi róna sem hefur líklega aldrei átt sjampó. Ég hlakka til að komast á hjólið aftur!

Ég vaknaði snemma í dag til að fá mér morgunmat með Alex. Hann & félagar nýttu tækifærið og keyrðu til Mt.Baker í USA kl 7 í morgun til að komast í allt púðrið þar. Ég þarf hinsvegnar í skólann & kemst ekki með - æjjj hvað maður á bágt !

Engin ummæli: