miðvikudagur, 30. janúar 2008

Sprengjuhótun á campus ?

Ég rölti í rólegheitum í hádeginu í dag að Salt Spring kaffihúsinu á campus til að hitta Stínu í hádeginu. Leiðin lá framhjá líffræðibyggingunni sem er beint á móti lyfjafræðibyggingunni. Ekki frásögu færandi nema rúmri klst seinna á leiðinni til baka þá var ástandið við líffræðihúsið eitthvað annað. Búið að girða af bygginguna með gulum borða, nokkrar sjónvarpsstöðvar mættar á svæðið ásamt sveimandi þyrlum og fullt af lögreglu. Ég spurði nærstadda hvort þeir vissu hvað væri á seiði en eina svarið sem ég fékk var að þeir hefðu séð lögregluna hlaupa inn með riffla og það væri búið að loka byggingunni.

Núna seinna í dag eru ennþá takmarkaðar upplýsingar um hvað er á seiði en einhver umræða er um sprengjuhótun og hún greinilega tekin alvarlega enda fullt af fólki inni í húsinu og starfsfólk innandyra var beðið að læsa að sér á skrifstofum sínum. Við á labinu grínuðumst í félaga Aqhlaq og sögðum honum að halda sig bara innandyra þar sem hann væri of tengdur Pakistan og þætti því of grunsamlegur utandyra í miðju sprengjutilræði.

Hmm þegar ég fór heim í dag um fimmleitið var húsið amk ennþá á sínum stað en ennþá afgirt og lokað. Best að fylgjast með frekari fréttum í kvöld !

Engin ummæli: