Ella vinkona sendi mér þessa síðu og mér finnst hún bara mögnuð. Íslenskir bændur eru svo móðins - meeeeeeeeee!
föstudagur, 22. febrúar 2008
Ágætis byrjun
Vikan byrjaði ágætlega. Keyrði til Whistler á mánudaginn í sól og heiðskýru - þó ekki til að fara á skíði í þetta sinn. Ég fór með leiðbeinanda mínum og félaga Parisu til að hitta danskan prófessor (Lars) frá Álaborg og hans fjölskyldu. Við keyrðum með kanadískan bjór í skottinu til að færa kauða. Ástæða heimsóknarinnar er að ég mun gera hluta af verkefninu mínu við Álaborgarháskóla hjá Lars með tíð og tíma. Lars og familí eru í skíðafríi hér og buðu okkur í mat í fjallaskálanum sem þau leigja. Það var margra rétta máltíð á boðstólnum í ansi flottum skála. Danskan mín virkaði furðu vel þrátt fyrir að hún hafi verið djúpt grafin í heilabúinu...ölið og ákavíti hjálpa merkilega mikið til. Við erum á leiðinni á þorrablót vesturíslendinga hér annað kvöld, spurning hvaða matur verður á boðstólnum hér ! Meira um það síðar, annars ættu þeir að geta pantað sviðin sýnist mér hér: kindur
Ella vinkona sendi mér þessa síðu og mér finnst hún bara mögnuð. Íslenskir bændur eru svo móðins - meeeeeeeeee!
Ella vinkona sendi mér þessa síðu og mér finnst hún bara mögnuð. Íslenskir bændur eru svo móðins - meeeeeeeeee!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Það yljar að lesa að þú sért jafnvel á leiðinni til Aalborg. Væri nú gaman að vera í sömu heimsálfunni lengur en nokkra daga í einu...knús og kram fra det danske..Ólöf og familie..
Jámm það væri óskandi að sjá meira af ykkur - ansi langt á milli þessa stundina! Knus tilbage :)
Skrifa ummæli