miðvikudagur, 13. febrúar 2008
Kabúmm
...vegna þess að 3 blokkum neðan við okkur varð sprenging í nótt. Þar með fuku "í loft upp" Starbucks kaffihús (húrrra !), taco veitingastaður (í lagi) og allir gluggarnir í apótekinu "Shoppers drug market" sem er bara dapurt fyrir þær sakir að dágóður hópur af útigangsmönnunum sefur gjarnan undir gluggum apóteksins. Ég sá þá ekki í dag. Að auki sprakk strætóskýlið okkar. Okkur finnst frekar merkilegt að hafa ekki vaknað við háfaðann frá þessu í nótt! Burtséð frá öllu þessu þá var frábært veður hér í dag við hjóluðum krókaleið meðfram sjónum við Spanish Banks stöndina í morgun (ekki of snemma þó) til að fara uppí háskóla. Þar sat ég í allan dag og las greinar, hlustaði á músik og sötraði kaffi. Nýr "labfélagi" Perisha mætti á svæðið, hún er frá Íran og var að ljúka Ph.D. frá Álaborgarháskóla og verður með okkur næstu 2 árin sem post.doc. Hópurinn sumsé stækkar. Nýr vinnufélagi mætti í hópinn hans Alexar í dag líka, skemmtilegur gaur frá Oregon fylki. Jajamen.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Erum við að fá snyrta útgáfu af sögunni? ;) Afhverju sprungu þessi hrelegheit? Voru starbucksþjónar að gera tilraunir með nýtt frabbuchino eða blönduðu útigangsmennirnir vanilludropana of sterkt?
Tja...ennþá verið að kanna málið en hugsanlegabara ómerkilegur gasleki, ekki meira spennó. Hils :)
Þið laðið að ykkur allskonar "spennandi" athafnir. Það var ekkert að gerast á UBC campus fyrr en þú (Lína) varðst þar nemandi og ég hef lítið heyrt af W-Broadway stemmingu fyrr en núna. Hehehhe !! Líklega meiri tilviljanir en það er í það minnsta ekki lognmolla í kringum ykkur. Það er þó gott að heyra að þið missið ekki mikilvægan svefn yfir svona smá sprenginum.
Við Fönn kíkjum kannski í kaffi einhvert kvöldið, höfum gott af góðum félagsskap í tvíverunni.
Andrea
Andrea & Fönn... við viljum endilega fá ykkur í kaffi/mat í vikunni :) Verðum í bandi
Skrifa ummæli