Nohh, hér er bullandi snjókoma :-) Nú er vetur konungur búin að hafa tækifæri á að demba yfir okkur snjó hér í borg í allan vetur. En í þau ca 4 skipti sem hefur snjóað þá velur hann 18 apríl sem einn af þessum dögum (um síðustu helgi var stuttbuxnaveður!) Fór í bíó áðan í þurru og allt hvítt þegar við komum út. "Hlýnun jarðar hvað..." !
Lauk annars í dag síðasta munnlegu prófi þessa önnina og þar með þarf ég ekki að taka fleiri kúrsa fyrir útskrift frekar en ég vil. Þetta gekk bara alveg ágætlega held ég þrátt fyrir nokkur "hmmmmm" og "uhhhhh" og "well you see uhhh". Ég átti nokkuð sterkan leik í prófinu þegar ég kallaði "inflexion point" (beigjuskil í stærðfræði) "inflation point" (inflation = verðbólga) í staðinn 2svar í röð. Náði að leiðrétta þetta á síðustu stundu þegar kennarinn var farin að horfa eitthvað undarlega á mig.
Framundan um helgina er greinaskrif hjá okkur báðum og skíðaferð hjá Alex á sunnudaginn og ég þykist ætla að taka þátt í 10 km "Sun Run" hlaupinu ásamt 55 þúsund öðrum hér í borg sama dag.
Ta taaa/L
p.s. Læt fylgja með hér smá ræmu frá stað sem kallast Skookumchuck og er hér rétt norðan við Vancouver. Þar myndast merkilega stór straum alda þegar sjórinn flæðir út við skil milli flóðs og fjöru og úr verður þessi eðal leikvöllur fyrir þá sem þora. Þessi strákur á straumkayaknum er ekki eldri en 12 ára og er alger snillingur (sjá link). Myndbandið fyrir neðan er frá sama stað með sjókayak.
Skookumchuck
Skookmchuck2
föstudagur, 18. apríl 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Til hamingju að vera búin með prófin og geta notið sumarsins, já eða snjósins ;)
Bokat heilsar
Til lukku með próflokin!
Ég verð nú að segja að mér leið vel að lesa að það geti snjóað þarna á ykkur þegar síst er von á eins og hér heima á frónni... væntanlega gerist það ekki á miðjum sumri eins og hér á frónni, en samt ;)
Eru þið Alex ekki búin að fjárfesta í nýjum kayak græjum?
Bestu kveðjur, vorið er komið....
Ósk
Takk takk :) Já veðrið hér er frekar óútreiknanlegt líkt og heima stundum. Við erum þó alveg sátt við smá nýjan snjó í fjöllin í kring í apríl..slyddan staldrar stutt við á götunum hér.
Við höfum ekki keypt nýja kayaka ennþá...smá sparnaður í gangi en í staðin kaupum við árs aðgang að klúbbi hér sem gefur okkur kost á að nota þeirra græjur út árið. Það er súper fínt enda hægt að prófa allskonar mismunandi báta. Bk/Loa
Skrifa ummæli