fimmtudagur, 24. apríl 2008

Vancouver klikkar ekki !

Við náðum að afreka ýmislegt síðastliðna helgi. Fórum á kayak á laugardaginn í alveg eðal veðri og rérum í kringum lúxus snekkjur og seglskútur, undir brýr og út á English Bay svokallaðan. Stór kostur við staðsetningu kayakklúbbsins er að hann er nánast við hliðina á besta "fish & chips" stað Vancouver borgar. Staðsettur niður við höfnina við Granville island. Eldhúsið er varla stærra en tvöfalt strætóskýli og maður borðar undir berum himni. Að sjálfsögðu frábært að "gúffa" í sig slorinu og frönskum eftir langan túr.



Vöknuðum svo eldsnemma á sunnudagsmorguninn. Ég til að fara að hlaupa 10 km fyrir allar aldir (hlýt að hafa fengið högg á höfuðið) og Alex á leið í fjallaskíðatúr með félögum okkar Faren & July. Ég hef ekki hlaupið neitt í nokkra mánuði og byrjaði á 10 km í Sun Run hlaupinu. Er hæstánægð að hafa hlaupið alla leiðina og fannst þetta bara ferlega gaman...telst þó líklega til leti-skokks þar sem ég var 1:04 klst á leiðinni og ég var númer 16946 þúsund af 59 þús þáttakendum og númer 6438 af 24869 konum. Sigurvegararnir hlupu á undir hálftíma. Já já...stefni annars á að bæta tíman alls ekki meira en um 5 mín. Næ þá amk Stínu sem skokkaði með mér ! Hef heilt ár til að ná þessu göfuga takmarki :-)



Flottustu hlaupararnir fannst mér allir arabarnir með túrbanana á hausnum. Fínt svitaband það. Svo er gamli hérna fyrir neðan sprækur, hann hefur líklega haft álíka tíma og ég :)



Alex og félagar okkar Faron & July fóru á meðan í fínan skíðatúr (verst að geta ekki stundum verið á 2 stöðum í einu) upp að Elfen Lakes ofan við Squamish. Það var fínt færi enda nýfallin snjór síðan á föstudag. Settum inn nýjar myndir frá svæðinu.



Ajö/L

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ útivistarar
Harkan í þér Lína að fara í 10 km hlaupið! Það er ekki laust við að það hafi komið fiðringur að sjá Kayak myndirnar, Valda fannst mikið til um flothúsin ;)

Adios
Ósk og Valdi

Lína og Alex: sagði...

Já ég er alveg veik fyrir þessum flothúsum ! Bestu kveðjur til ykkar Valda ;-)