mánudagur, 30. júní 2008

Það er heitt í Vancouver


Hér er búið að vera rúmlega 30 stiga hiti undanfarna daga og heiðskýrt. Sumsé bongóblíða :) Fékk samstúdenta í mat á föstudaginn og við flýttum okkur að borða og koma okkur niður að strönd enda íbúðin með sína stóru glugga orðin eins og gróðurhús það er svo heitt hérna inni. Mér er nú venjulega kalt á puttunum en núna "ber ég æðarnar utaná mér" af hita. Skrapp í sund í dag til kælingar. Undarlegt að heyra pabba segja frá því í dag að það væri snjór í fjöllum fyrir norðan og snjóruðningstæki hafi verið við vinnu á Öxnadalsheiði og á sama tíma er Alex við vinnu undir frostmarki. Ohh mér er farið að leiðast að vera ein heima...hlakka gríðarlega til þegar AJ kemur heim í lok vikunnar !

Hitti gamla vinnufélaga úr Coast Mt. á laugardagskvöldið yfir öllara og skrapp með Mark og Stínu á pöbbinn á sunnudag til að fylgjast með úrslitaleiknum í EM og kíkja á jazzfestivel. Úrslit EM mikill léttir fyrir Austurríkismenn, það væri nú ekki til að auka á "nágrannakærleikann" ef Þjóðverjar hefðu unnið í miðri Vínarborg ! Skemmtilegur leikur, Spánn átti þá skilið fleiri mörk.

Að öðru. Það gladdi mig í dag þegar ég varð vitni að því þegar tvær skvísur settust við hliðina á öldruðum útigangsmanni og færðu honum hamborgara, kók og ís og borðuðu sína borgara með honum og gáfu um leið smá "kompaní". Mér finnst ferlegt þegar ég sé háaldrað fólk, tannlaust, í götóttum fötum með hangandi haus að betla fyrir mat þá get ég ekki annað en séð af nokkrum dollurum og hugsað að þrátt fyrir að Vancouver sé kosin ein besta borg í heimi til að búa í þá er nú eitthvað klikk í kerfinu hér sem og í öðrum borgum.

Engin ummæli: