Er ein heima og ekki með sjónvarp. Bloggtíðni því í hærri kantinum þessa dagana á meðan AJ pússlar saman gps þrífótum uppá jökli. Stiklur:
- Í gær setti ég opinn spaghettí pakka uppí skáp og lagði uppá endann. Í morgunn opnaði ég skápinn og ég upplifði þegar spaghettípakkinn steiptist á hliðina og það rigndi ítölsku spaghettí yfir hausinn á mér. Ég uppgötvaði um leið að etv mætti nota ósoðið spaghettí í "mikado".
- Er farin að nota sólgleraugu á hjólinu. Fékk nebblilega flugu í augað á fullri ferð um daginn. Það var vont.
- Fékk íranskt nammi frá Parisu í dag. Reyndist vera hveitikaka hulin pistasíum og einhverju óþekktu fyrirbæri. Fékk nammi líka þegar fröken Sjanghæ kom heim úr fríi frá Kína, það var hnetuduft í gylltum umbúðum. Ekki nema von sumir nái varla 40 kg og það jafnvel með bakpoka.
- Er að lesa bók þar sem sögusviðið er mið-austurlönd. Ég fæ hiksta af því að lesa um kvennfyrirlitingu og kóraninn sem áttavita og langar að bölva upphátt niður við strönd þar sem ég les.
- Kínverski tannlæknirinn og sessunautur minn sagði mér að það væri hefð í sínu héraði að gefa brúðhjónum íbúð, húsgögn og bíl og flestir foreldrar söfnuðu fyrir gjöfunum í fjölda ára og yrðu svo hálf gjaldþrota. Svo ætti tengdamamman að gefa hálsmen úr dýru gulli eða demanti! Ég sagði honum að á Íslandi fengi fólk stundum t.d. glingur á borð við bollastell og espressokönnur en íbúðir og bíla keypti það nú sjálft. Hann varð hissa. Svo fórum við að ræða rafmangstannbursta.
- Hlustaði á Boney M í meira en klukkutíma.
- Kláraði fína heimabruggaða svartberjasnafsinn í áföngum.
- Horfði á Þýskaland - Tyrkland í dag ásamt fríðu alþjóðlegu föruneiti lyfjafr.deildar
var búin að veðja dollar á Þjóðverjana. Kom út með hagnað.
- Langar í mynd af Herðubreið eftir Stórval. Það er erfitt að finna slíkan grip.
- Keypti marga flugmiða um daginn, styrki þar með mörg flugfyrirtæki sem eru í taprekstri: Vancouver-Montreal-Keflavík-Munchen-Calgary-Vancouver.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Við eigum Herðubreið eftir Stórval :-) en hún er ekki til sölu !!
Annars vona ég að þú sért ekki grilluð í höfðinu eftir strandleguna í dag. Verð á bókasafninu næstu daga eftir þú ert í kaffifíling á campus....
Kv. Andrea
Herðubreið er fundin...hjá kollega þínum...gullsmið í Kópavogi :)
Rafhlöðurnar í símanum tæmdust í dag í miðju samtalinu okkar og ég er ekki frá því að hafa brennt slurk af heilasellum í sólinni og hitanum- heyrumst í vikunni og ég er alltaf kaffiþyrst. Mæti aftur á campus á mið.dag. Bis dann.../L
Skrifa ummæli