fimmtudagur, 5. júní 2008

Rigning á vesturströndinni



Skelli með mynd frá höfninni í Victoria sem ég tók um síðustu helgi. Það er sko "hjólað í vinnuna vika hérna" þessi tekur þátt !

Fór í bóksölu UBC á leið heim í dag og keypti "The rough guide to Oregon & Washington". Planið var að keyra "niðureftir" yfir landamærin og þvælast um þar til á næsta fimmtudag. Núna nokkrum klst síðar erum við að hugsa um að einfalda hlutina bara og fara til Tofino úti á eyju. Sleppa tjaldinu og leigja bara bústað niður við strönd. Verð að segja að veðurspáin hefur sitt að segja í þessari ákvörðun...það er bara spáð rigningu og meiri rigningu og hita sem slefar í um 13 gráður bæði hér í BC og Washington og það í Júní !Í stundarbrjálæði í leit að betra veðri skannaði ég flug til Hawaii frá Vancouver og datt í hug að nýta svona "last minute offer" en þar er líka spáð rigningu !!! Tékkaði því á Yellowstone park...en þar er líka rigning. Isss þá er bara að taka ferjuna og keyra til Tofino og spóka sig þar í þoku og rigningu með bók eða árar í hönd og njóta þess að vera fjarri sjúkrabíla sírenum og brjálaðri traffík á Broadway :-)

4 ummæli:

Birna sagði...

Það er fínasta veður hér á Ísafirði, þið eruð ávallt velkomnin :o)
Er einmitt að spá í að skella mér í miðnæturgolf, rölta hringinn með öl í annari og kylfu í hinni. Gerist ekki betra!!
Svo nú er bara að fara á last minute og bóka 2 miða til Ísafjarðar :o)

Lína og Alex: sagði...

Hæ :) Ahh hljómar vel þetta með golfið og ölið. Við skruppum þó og fjárfestum í ferðagasgrilli og langþráðum fótbolta...erum á leið niður eftir ströndinni í Washington fylki í fyrramálið. Láttu okkur vita ef þú finnur góðan fjalla/skíða bissness á Ísafirði...við komum um leið og leggjum í púkk ;-) Ha'de godt LoA

Ella sagði...

Eftir 7 mánaða dvöl í indlandi fórum við Konni í fyrsta skiptið út á lífið í gærkveldi. Við enduðum að sjálfsögðu í eftirápartý, uppi á þaki með útsýni yfir 'fallegu' borgina okkar.
Við hittum þar stelpu, indverska að uppruna en frá Vancouver. Hún var búin að vera í 5 daga og á tæplega 3 mánuði eftir í 'afplánuninni' eins og þetta kom út. Saknaði Vancouver sem sagt slatta og leist ekkert á sig greyjið. Til að núa henni þessu meira um nasir sagði ég henni frá ykkur og hvað þið færuð að fýla þetta vell:) Hún svarað með ".. ohh dont say the 'V'-word." -horfði yfir Hyderabad í allri sinni fegurð og skellti gúllsopa í mallakútinn:)
Njótið:)

Nafnlaus sagði...

Var einmitt að sjá Friðrik nokkur krónprins (og svallari) skellti sér til Tofino í brúðkaupsferð með nýju kerlinguna og er þar kannski enn. Þið getið e.t.v. tekið svoleiðis túr fyrirfram. Kv. frá Köln/eöh