sunnudagur, 22. júní 2008

Ja hvur andsk...

Afsakið hlé !

Við vorum sko á ferðalagi og höfum verið að bardúsa töluvert niður á strönd á kvöldin, skroppið á kayak annað slagið og Sigurlína pælt upp og niður í þeirri stundum frábæru eða stundum fáranlegu hugmynd að eyða næstu árum í undarlegt doktorsverkefni sitt.
Alex er núna staddur uppi í Yukon og tjaldar þar uppi á jökli í rúmar 2 vikur. Ég hugga mig við að vera búin að fá loforð fyrir plássi í þyrlunni næsta sumar og heyra í stráknum annað slagið. Það næst samband í gervihnattasíman þegar vill svo vel til að hnöttur sveimi yfir svæðið.



Á meðan AJ safnar skeggi og vinnur uppi á jökli í Yukon tók ég uppá að vera frekar ólík sjálfri mér á laugardaginn. Við förum gjarnan út úr bænum um helgar að útivistast og endum sjaldan í miðbæjarrölti. Ég ákvað sumsé að skreppa niður í miðbæ. Ég fór fyrst á naglasnyrtistofu! Þeir sem mig þekkja halda eflaust að ég hafi rekið hausinn mjög fast í staur. Ég bara leit á puttana á mér eftir að þeir hafa legið að mestu í sandi og sjó kvöldið áður og mér leist ekkert á og ég nennti ekki að laga þessa sóðfingur sjálf. "Nei takk, ég vil ekki velja naglalakk" sagði ég, "bara laga þetta og setja glært yfir takk". Starfstúlkan reyndi að sannfæra mig um að bleikt færi mér vel og að hún gæti flikkað uppá tærnar en henni tókst það ekki. Þar sem ég hef ekki keypt flík í marga mánuði lá leiðin næst í H&M. Ég bætti upp fatasöknuðinn með því að eyða dágóðum tíma í mátunarklefa þeirrar ágætu verslunar sem var að opna hér og fór út með fenginn. Inni í H&M þennan dag gilti "survival of the fittest" þvílíkur var fjöldin af fólki þarna inni í veiðihug. Í dag eyddi svo ég fyrripartinum með ítölskum vinum okkar Claudio og spússu hans Constönsu með Carlsberg í hendi og ítölsku pasta til að horfa á leikinn Ítalía - Spánn ! Ég gat ekki annað en stutt Ítalíu í þessu stórskemmtilega matarboði þar sem blótað var stíft á Ítölsku yfir boltanum. Eftir leikinn fór ég svo til að toppa alltsaman á hárgreiðslustofu þar sem ég lét flikka uppá lubban. Sit því bara frekar fín hérna við skjáinn í kvöld ;)

Hmm fyrst ég er byrjuð að bulla læt ég fylgja annað blogg með smá ferðasögu....

Engin ummæli: