sunnudagur, 22. júní 2008

Salt spring eyja & Sunshine Coast

...Á ferju flatmagandi uppá dekki, ofan á heitu loki sem er líklega vélarhlíf á leið til Salt Spring eyju. Það var alltof kalt til að sitja úti á meðan á siglingunni stóð en vélarhlífin var funheit og því kjörið að breiða úr sér á henni miðri og glápa á umhverfið. Já svo er ágætt að blunda á vélarhlíf.



Ferjuna rak á land og við keyrðum nánast alla helstu vegi eyjarinnar á innan við 1,5 klst og mættum ca 5 bílum! Frekar athyglisverð eyja enda búa þar aðallega rithöfundar, leikarar, listafólk, hippar, "altmuligtmænd", fiskikarlar og nokkrir vínbændur. Sökum úrhellis létum við útivist og tjaldið bara vera, leigðum í staðin lítið hús niður við vatn með eldstæði. Taldi amk 10 köngulær og 3 táneglur (gubb!) við rúmstokkinn þegar inn var komið og sópaði þessu hússkrauti út hið snarasta og þá mátti kalla þetta bara ansi sjarmerandi. Eyddum svo 2 dögum í að lesa, heimsækja eyjabruggara og kaupa af þeim vín, borða lax og rölta niður við klettastrandir.



Eftir þessa daga var ég ekki enn búin að nota frisbíinn, bikinið né sólkrem. Svo komu svört þrumuský svo við drifum okkur í siglingu að Vancouver eyju og keyrðum rakleitt á algeran lúxus ítalskan veitingastað í Nanaimo og gáfum veðrinu langt nef og átum fjórréttað á meðan regnið beljaði niður rúðuna við hliðina á borðinu. Við tókum skyndiákvörðun yfir eftirréttnum um að bruna niður að bryggju og taka ferjuna til að keyra upp "Sunshine coast" (kaldhæðni). Siglt er að Gibson og svo brunuðum við upp strandlengjuna að bæ sem kallast Egmont. Þar er lítil höfn fyrir sjóflugvélar og trillur en bærin er einna þekktastur fyrir að vera upphaf gönguleiðar að Skookumchuck flóðöldunum. Svæðið er við stað þar sem sjórinn gengur inn í fjörð via þröngt op. Þar myndast gríðarháar öldur þegar flæðir út og inn. Þetta er þykir eitt merkilegasta svæði jarðar fyrir straumkayak aðstæður. En burtséð frá því þá er svæðið bara afskaplega fallegt og vel þess virði að heimsækja. Ekki spillir fyrir að gista í "bungalow" uppí tré ! Læt fylgja mynd af öldufyrirbærinu (fengin að láni, tók þessa ekki sjálf). Fleiri myndir frá Egmond og Salt Spring á myndasíðunni okkar.

Engin ummæli: