fimmtudagur, 31. júlí 2008

Úff !

Ég heyrði um einn klikkuðastsa atburð sem ég hef heyrt af lengi í fréttum CBC í morgun. Í nótt um borð í Greyhound rútu á leið frá Edmonton til Winnipeg var sofandi ungur maður um tvítugt með músík í eyrunum. Það var hans síðasta en þá tók sessunautur hans uppá því að ráðast á hann með rambóhníf (ég ætla ekki að lýsa því frekar en það er linkur á fréttina hér fyrir neðan). 37 aðrir farþegar forðuðu sér út og það endaði með því að þessi bilaði maður afhausaði unga manninn !!!

Etv kominn tími á aukið eftirlit í rútum líkt og fyrir flug !!! Hér er linkur á fréttina: CBC frétt
CBC TV

Engin ummæli: