mánudagur, 11. ágúst 2008

Ísland/Austurríki

Halló, einhver heima - erum á leið í heimsókn :-)

Við erum sumsé á leið til Íslands á föstudaginn og spókum okkur þar í eina viku. Það er eldfjallaráðstefna á dagskránni í Reykjavík og við spókum okkur eitthvað þar en tökum með gönguskóna, grillskapið og tilbehör og vonumst til að geta heimsótt sem flesta og etv skroppið yfir fimmvörðuháls (einhver memm ?). Þann 24 ágúst erum við svo flogin aftur með fríðum flokk í alpana. Þar verður haldið uppá brullupið okkar og afmælið hans pabba en HÞ verður um leið "prófessjónal pensjónisti". Sögur herma að vín fljóti eftir götunum, sundlaugar fyllist af bjór, matur verði á hverju borði og jóðl berist frá fjallstoppum :)

Vikan fór að mestu í allskonar pælingar og plön og svo hittum við svo mikið af skemmtilegu fólki á kokteilakvöldi á fimmtudaginn. Kvöddum Parisu íranska vinkonu mína sem er nú farin til Köben á föstudag og svo skelltum við okkur í 20 km göngu upp á Aluate fjall í pissandi rigningu og þoku um helgina með kanadískum vinum okkar...ohh það var sko bara hressandi eftir heitan júlí mánuð. Núna emjum við af strengjum í hverju skrefi ! Hér eru glefsur (ekkert útsýni þó af toppnum...við spiluðum frisbí þarna uppá klettnum - eflaust þau fyrstu!):


4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ tilvonandi brúðhjón!
Við félagarnir í Actavis hlökkum til að sjá ykkur á laugardaginn :)

Bestu kveðjur
Ósk

Lína og Alex: sagði...

Hæ hó - sömuleiðis :)

Unknown sagði...

Hefði verið afskaplega gaman að labba eitthvað með ykkur en það verður bara næst :)
Kveðja
Halli

Lína og Alex: sagði...

Jámm Halli...þar til næsta bara ;)