þriðjudagur, 9. september 2008

Smáauglýsingar

Kæru vinir, afsakið hlé & tilkynning um brullup !
Við sumsé skruppum til Íslands og í alpana og giftum okkur í leiðinni í Landeck þann 30 ágúst - frábær ferð í alla staði ! Höfum þó ekki tíma til að segja frá neinu núna. Við erum þó með góðan slatta af nýum myndum á netinu frá Íslandi og ölpunum...segja meira en mörg orð. Erum bara rétt lent hér en strax rokin í burtu. Tókum á móti félaga Guðna sem gisti hjá okkur eina nótt og svo erum við að pakka saman tjaldi og gönguskóm og erum farin í klettafjöllin í fyrramálið í rúma viku í Jasper og Banff þjóðgarðana. Skrifum meira þegar við komum til baka. Bis bald !

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vá, gaman að skoða myndir. Þetta hefur greinilega verið alveg meiriháttar enda ekki hægt annað með svona fallegu og skemmtilegu fólki :-)
Hafið það sem best og svo heyrumst við, knús í bili

Ásdís

Nafnlaus sagði...

Vá innilega til hamingju;) kveðjur frá okkur;)

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með brúðkaupið kæru hjón:) Gaman að sjá myndirnar, ofsalega fallegt allt og geislar alveg af ykkur:)
Knús Kristín Þóra

Birna sagði...

Til lukku með hvort annað frábæra fólk, fallegt fólk á fallegum stað, gæti ekki verið betra :o)

Bestu kveðjur frá firði ísa, þar sem veturinn mun fara í leit að bóndabæ á réttum stað fyrir ævintýralandið okkar.

Kossar og knús til Van city.

Nafnlaus sagði...

Innilegar hamingjuóskir kæru hjón! Glæsilegar myndir sem gaman er að glugga í :)
Ég þakka ykkur innilega fyrir komunina í Miðtúnið. Mikið var gaman að hitta ykkur, ég hefði nú alveg verið til í að rabba meira við ykkur. En svona er það nú þegar maður er í gestgjafa hlutverkinu sem er að sjálfu sér gefandi. Ég sá ekki betur en að vinnufélagir mínir stóðu sig vel í tjattinu og allir hafa skemmt sér vel ;)
Hafið það sem allra allra best!

Kær kveðja
Ósk, Valdi og Ljómi (rjómi)

Nafnlaus sagði...

Til hamingju :)
vildi benda þér á þessa síðu:
http://glera77.bloggar.is/

Kveðja
Edda, Addi, Kolfinna og Ásbjörn