föstudagur, 10. október 2008

Úllen dúllen doff, kikkilani koff...

Eftir langa pásu í skrifum hér væri hægt að krota niður góðan slurk af jákvæðum atburðum úr okkar lífi héðan frá unanförnum vikum. Læt það þó vera enda hugurinn bara mikið til að melta heimsfréttir og hræringar á Íslandi, við höfum það gott hér en maður sitjur bara undrandi með uppglenntar augabrýr og lafandi neðrikjálka & klórar sér í hausnum yfir fréttunum. Vonum svo sannarlega að þetta ástand verði ekki öllu verra eða kryddað frekar með jarðskjálftum eða eldgosum.

Erum á leið í fyrramálið út á eyju yfir þakkargjörðar helgina hér með nokkrum góðum félögum. Farartækin eru hjólhestar og ferjur og pakkað verður lopapeysu og brandí og falskar söngraddir virkjaðar. Upplagt að vera fjarri internetinu og fjölmiðlum í smá tíma sem við höfum annars verið límd við. Held ég geti alveg mælt með þessu í kreppunni enda þarf engan gjaldeyri sjáðu til. Vorum svo að sækja pizzu áðan og fengum með miða sem á stóð þetta - sem á svo ágætlega við þessa dagana - enda aurinn ekki allt:

"What does it mean to be a "Human 4 Beings" ? It´s living present, honoring all life, treading consciously and caring so much that you live inspired and in turn, inspire others".




Horseshue lake - Jasper National Park, tekið í september 2008

Engin ummæli: