- Mikill spenningur fyrir alpa brullup LoA í eldgömlum kastala
- Vona að ég gangi í að kaupa kjólinn amk meira en klst fyrir athöfn
- Mikil gleði að stýra ekki lengur elektróðum í rottuheilum (ekki útskýrt frekar)
- Miklar pælingar um nýtt PhD verkefni eða setja það í salt og súr í bili
- Úttekt á fjallakofum við Alta Lake í Whistler
- Fjallganga og snjókast með félögum frá Milano á laugardag í svaka hita og snjó !
- Kvöldmatur á ströndinni "á dúknum hennar ömmu" með félögum Halli og Andreu. Eitt af þessum eðalkvöldum !
- Afmælisgrill hjá þýskum félaga Christian og kínverkskri spússu hans í Richmond í dag
- Nýklipptar táneglur
- Sænginni hent inn í geymslu vegna hita í íbúðinni
- Gleymdi nánast nafninu mínu og hnattstöðu vegna hita
- Höfum nú smakkað allar pizzurnar á matseðli Rocky Mt. Flatbread company
- Hef ráðist í "grillaða banana með mars" eftirrétta-herferð og kynnt fyrir allraþjóða kvikindum undanfarið með mikilli undrun og góðum árangri
- Muna að kaupa mjólk, sinnep og kjól !
Frá Hollyburn ferð á lau.dag (fleiri myndir á flickr)

3 ummæli:
Samgleðst þér innilega að vera laus við rottutilraunirnar!!
hvernig gengur brúðarkjólaleitin? Ég vildi að ég gæti komið með þér í leiðangur. Hlakka til að hitta ykkur í Tirol. 4 vikur í brottför...jibbý
Sæl elsku frænka til hamingju með endalausa hamingju. Ég ætla bara að láta þig vita að ég ætla ekkert að troðast með í brúðkaupið þitt elsku stelpan mín, meira gaman fyrir þig að vera í faðmi fjölskyldu og allra bestu vina.
Vona bara að allt gangi ykkur í haginn eins og verið hefur og óska ykkur alls góðs. Ef einhver fluga verður suðandi í kringum þig þá er það ég í dulargerfi.
Þín frænka Sigrún
Jú kjóllin er komin í hús..kolsvartur svalur kjóll ;)
Frænkan mín kæra - við sjáumst bara í miðbænum í R.vík ef þú mætir ekki í Alpana, þarf líka að kíkja á nýju íbúðina þína. Kram/L
Skrifa ummæli