Við vöknuðum eldsnemma í gær, renndum við í kaffi og muffur á uppáhalds kaffhúsinu okkar á Arbutus og héldum svo áleiðis til Seattle.
Daginn fyrir brottför var ég búin að taka út helstu sniðugu verslanir í Seattle sem selja kjóla. Ég var vopnuð GPS tæki sem við undir venjulegum kringumstæðum notum nú bara í fjallgöngur eða til að rata í bílnum. Í þetta skiptið voru punktarnir bara settir inn fyrir hinar ýmsu verslanir og tækið stillt á "walking mode". Við byrjuðum nú dagin bara á því að fara út að borða. Stefnan svo sett á max 5 búðir. Alex stóð sig eins og hetja í þessu búðarrápi. Ég passaði bara uppá að hann fengi expresso og kaffi með reglulegu millibili. Komst að því að sívætlubúar eru heldur "konservatívir" í þessum kjólabissness. Ég ræddi þetta við eina afgreiðslustelpuna og hún sagði bara "já ég veit...best að fara til L.A. bara og versla !".
Fann loks einn undurfagran kjól en gerði þau mistök að máta áður en ég kíkti á verðmiðan. Svakalega var hann fínn...var að því kominn að kaupa þegar ég ákvað að skoða verðmiðann - tja "litlar" 240 þús kr ! Ég var búin að áætla max 30 þús kall þegar ég sá flíkina. Við hættum þessu bara enda hvorugt okkar mikið fyrir búðarráp. Skelltum okkur bara í snatri á næsta veitingastað. Fengum fínasta veður í Seattle sem annars hefur verið kölluð því skondna nafni Sívætla vegna rigningar (vitna í Sollu Seattlebúa). Ágætis borg en við erum auðvitað spillt héðan frá Vancovuer og finnst hún öllu betri ;-)
Annars tíðindalaust héðan enn sem komið er. Erum að spekúlera í hinu og þessu varðandi búsetu, nám, vinnu ofl næstu ár. Við höfum í hendi hús með arni, garði, kanó og vatni uppvið Alta Lake við útivistarparadísina Whistler sem okkur býðst til leigu í vetur. Planið er að AJ ynni þar í fjarvinnu og mætti til UBC í Vancouver 2svr í viku. Hinsvegar smá hraðahindranir í því verkefni þar sem yfirmaður Alexar er farinn að "tosa í handbremsuna" og er með efasemdir um ágæti fjarvinnu þessa dagana. Sumsé status quo.
sunnudagur, 20. júlí 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli