þriðjudagur, 29. júlí 2008

Brimbrettatúr til Tofino

Það var svolítill spenningur á heimilinu undanfarnar vikur. Okkur stóð til boða þessi fíni sumarbústaður til leigu með prívat strönd, kanó og Whistler skíðasvæðið í bakgarðinum (flott ekki satt !).


Alex var að plana að vinna fjarvinnu og mæta 2svar í viku á skrifstofuna og ég ætlaði að fá mér vinnu á svæðinu yfir eina skíðavertíð. Okkur fannst ansi spennandi að prófa að búa svona í einn vetur og stunda útivistina grimmt. Það voru fordæmi fyrir þessu á skrifstofunni hjá Alex svo hann fór og ræddi málið við hr. yfirmann. Honum leist ekki á blikuna og vildi ekki missa AJ úr húsi, sagði það þó ósanngjarnt að AJ fengi ekki fjarvinnu líkt og félagi hans sem stundað hefur slíkt undanfarin ár. Hr. yfirmaður ákvað því skipa vinnufélaga Alexar að mæta oftar í viku á skrifstofuna. Við verðum því áfram hér í borg en aumingja þjóðverjinn sem vinnur með AJ þarf nú að mæta til vinnu á hverjum degi - úps !

Að raunverulegri atburðum síðastliðinna daga:
Við tókum ferjuna til Nanaimo ásamt vini okkar Faron og keyrðum að tjaldstæði nálægt Tofino. Með í för voru þrjú brimbretti og tilheyrandi blautbúningar enda kyrrahafið kalt á þessum slóðum. Bíllinn hans Faron vakti töluverða athygli enda búið að rífa allt út úr bílnum afturí og smíða þar svefnpláss í gamalli Toyota Tercel. Faron er með álíka toppgrind og við Alex smíðuðum fyrir kayakana forðum daga...bara skroppið í næstu byggingavöruverslun og keyptir 4 boltar og dúndrað í gegnum þakið.






Við tjölduðum við strandlegjuna á Pacific rim nálægt Tofino og keyrðum svo með brettin að Incinerator Rock til að surfa. Við höfum ekki toppgrind á okkar bíl og bíllin hans Faron er bara 2ja manna - það sátu því alltaf 2 frammí og svo skiptumst við á að liggja á dýnunni afturí á leiðinni niður að strönd.



Faron er surfari af lífi og sál frá Oregon fylki. Við byrjuðum morgnanna á að keyra út um hinar og þessar strandir til að leita að réttum veðurskilirðum og öldubrotum. Þetta var svo ferlega gaman ! Það var líka ánægjulegt að finna nokkrar litlar öldur fyrir byrjendur en við eigum því miður ekki myndir frá þeim degi þar sem öldurnar voru svo klikkaðar að SÞH leist ekki á blikuna og lét duga að svamla á brettinu í fjöruborðinu enda ekki alveg með taktana á hreinu sko! Hér fyrir neðan má sjá Faron í "apa-stöðu" í byrjendabriminu:



Eftir einn vel blautan rigningardag á föstudaginn var kalt að koma úr sjónum. Við vorum svo heppin að rekast á "been there, done that"mannin Jack sem kveikti bál handa okkur - eðal kanadísk gestrisni! Jack (sem var vel íðí) átti vel kriddaðar skemmtilegar sögur - satt eða logið, skiptir ekki máli. Hann er sumsé lögfræðingur og á stóran hluta af strandlengju við Pacific Rim. Þar rak hann einu sinni tjaldstæði þar sem hann var með 10 gæslumenn með svartabeltið í karate vegna óláta. Já og hann nefbrotnaði nokkrum sinnum í slagsmáli við gestina, fékk nóg og flutti til fjalla og gerðist kúreki. Svo fékk hann nóg af því og gerðist sjómaður um öll heimsins höf. Í kjöfarið keypti hann sokkið sjóræningjaskip (Jack er núna að leita að einhverjum sem á geiger teljara til að kanna hvort það leinist gull í niðurgröfnu skipinu - annars varla þess virði að grafa það upp) Jack hefur líka bjargað kastölum í Evrópu með lögfræðisnilli sinni. Arnold Swharsenegger og John Travolta eru góðir vinir hans :)



Faron hafði rétt fyrir sér og varaði okkur við því að þetta sport væri ávanabindandi. Núna langar okkur í brimbretti og tilheyrandi dót en 8 fm geymslan er full af leikföngum !

3 ummæli:

Ella sagði...

Þú tekur þig svakalega vel út með brettið! Það er alveg nægileg afsökun fyrir að versla eitt ekki satt, smá bling bling í geymsluna til auka... ;)

Það voru skemmtilegar öldur í thailandi, við bodyboarduðum smá og ég verð að segja að ég skríkti eins og smástelpa við gleðina. geggjað!!!

Lína og Alex: sagði...

Heyrðu við verðum þá að taka einn surf túr saman við tækifæri ;)

Ella sagði...

vá það hljómar vel!

svoa miðað við þessar öldur sem ég komst í og bodyboardið þá get ég rétt ímyndað mér adrenalínflippið í alvöru öldum:)