sunnudagur, 16. nóvember 2008

Revelstoke jól



Við ætlum að eyða jólunum þetta árið hér í Kanada. Við erum nýbúin að fjárfesta í húshjálpinni "Iron-Maiden" (forlátt straujárn) til að klessa vaxi undir skíðinn fyrir veturinn. Við ætlum að keyra eftir svokölluðum "powder highway" til Revelstoke sem er í ca 7 klst akstursfjarlægð frá Vancouver í átt til Klettafjallanna. Þar er að finna Revelstoke fjall við Columbiu ánna og lengstu skíðabrekku í Kanada sem ku vera 13 km löng. Þó það sé soddann lúxus að skíða hér við vesturströndina þá er enn betra færið nær klettafjöllunum enda kaldara, minni raki í lofti og útkoman því fínasti kampavínspúðurnjór...uhh það fer þó eitthvað lítið fyrir snjónum ennþá (krossa fingur!). Við ætlum að gista nokkrar nætur og gera mest lítið nema skíða, borða og sulla í heitum potti - nú fer vonandi bara að kólna hressilega og snjóa (það er enn pláss í bílnum ef einhver vill koma með).

Annars höfum við það bara fínt hérna og erum mjööög ánægð með nýja hverfið. Vorum með góðan gest hjá okkur alla síðustu helgi. Krista vinkona okkar kom frá Victoriu og það er því búið að vígja gestaherbergið og þar er víst undur gott að sofa og pönnukökumorgunmaturinn klikkar ekki (hint hint...tökum endilega á móti gestum). Nú svo er bara búið að vera straumur af iðnaðarmönnum hérna hjá okkur í vikunni. Það fór sumsé að leka "kúkabrúnu" vatni meðfram ljósakrónunni í eldhúsinu - smá byrjunarvandamál. Vitandi það að klósettið á efri hæðinni er beint ofan við eldhúsið okkar var mitt fyrsta verk að þefa af vatninu. Blessunarlega var þetta ekki "niðurhalið" frá nágrannanum. Hálftíma síðar var mættur brjálaður pípulagningamaður með vélsög og exi í eldhúsinu að brjóta upp loftið hjá okkur til að finna lekann. Gat ekki annað en smellt af þessu mynd enda frekar kómiskt alltasaman (sbr myndir fyrir neðan). Honum var þó ekki vel við að ég væri að sveifla myndavélinni þarna og ég lét hann vera þegar hann hélt áfram að saga og hamra í rörinn. Úff mikið er gott að leigja bara og bera engan kostnað af ! Við erum sem betur fer með góðan leigusala, hún Sonja er fljót að bregðast við og láta laga alltsaman. Komumst svo að því yfir kaffi með Sonju að við verðum á sama skíðasvæði um jólin svo við erum að sjálfsögðu búin að plana hitting saman í brekkunum.



6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Get ekki neitad tvi ad smá øfund sé i mér enda girnileg skídamynd ...tekki vel svona vesen med rør sem fara í gømlu húsi... ég ber tó alfarid allann kostnad af slíkum vidgerdum sjálf..damn it...

hilsen fra DK
Óløf

Lína og Alex: sagði...

Ja jamen, það væri ekkert vera að hafa ykkur með í brekkurnar - það hlýtur að gerast fyrr eða síðar þegar við verðum komin á Evrópska grundu ;)
Hils til Viborgar

Nafnlaus sagði...

Hellú - svakalega er þetta freistandi boð... stendur það ekki að ári líka?

Dreymir um skíðaferð í dúnmjúkum snjó mmmmmmmm :)

Kveðja úr Miðtúni 18

Lína og Alex: sagði...

Jú jú...að öllum líkindum nýtt tilboð að ári, spurning hvort það verður hér eða í ölpunum ;)

Birna sagði...

Æjjjj nenniði að taka þessa mynd af blogginu!!! Ég fæ í magann í hvert skipti sem ég sé hana. Verð svo sjúklega öfundsjúk.
Kíki sko pottó í heimsókn í alpana þegar þið loksins hunskist þangað :o)
Knús á línuna.

Lína og Alex: sagði...

He he ég slefa sjálf þegar ég horfi á þessa mynd á hverjum degi og hlakka til jóla - ekki veitir af, maður gleymir því stundum að það sé snór í fjöllum hér í kring þar sem það rignir jú bara flesta daga í Van - við hunskumst líklega í alpana eftir ár eða svo og það væri bara eðal að fá þig í heimsókn Birna ;)